Fréttir

Verður HK deildarmeistari í kvöld?

Einn leikur fer fram í MIKASA deild kvenna í kvöld þegar Þróttur R tekur á móti HK. Með sigri getur HK tryggt sér deildarmeistaratitilinn í blaki kvenna árið 2010. Ef svo fer verður bikarafhending að leik loknum.

 

HK er efst í deildinni með 18 stig og eiga tvo leiki eftir. Í öðru sæti er lið KA með 16 stig en liðin leika innbyrðis í síðasta leiknum næstkomandi sunnudag. Þróttur Nes er í þriðja sæti með 14 stig og á tvo leiki eftir, gegn Fylki og Stjörnunni um næstu helgi. HK er því í kjörstöðu að tryggja sér titilinn í kvöld því komist þær í 20 stigin getur ekkert lið náð þeim að stigum.

Jason Ívarsson mun mæta í kvöld til að afhenda deildarbikarinn fari svo að HK vinni leikinn. Ef illa fer eru tölfræðilegar líkur enn til staðar að Þróttur Nes komist í toppsætið og því þarf að bíða um sinn með afhendingar.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning