Markmiðið með skólablaki er að kynna krökkum og kennurum fyrir blakíþróttinni, einfalda kennsluaðferðir og auka sýnileika hennar á landsvísu. Einnig er þetta þetta frábær vettvangur fyrir hópefli fyrir nemendur og mikil skemmtun fyrir alla. Markmiðið er einnig að halda þessi viðburði árlega.
Öllum skólum á landinu er boðið að taka þátt með nemendur í 4.-6. bekk.
Hérna er að finna myndir frá viðburðum sem haldnir voru í október 2021.
11 viðburðir voru haldnir árið 2021 um allt land: Dagsetningar og staðsetningar voru:
- 4. október mánudagur Reyðarfjörður Alcoa höllin – Knatthúsið Reyðarfirði
- 8. október föstudagur Akranes Akraneshöllin
- 11. október mánudagur Ísafjörður Íþróttahús Ísafirði – Torfnes
- 13. október miðvikudagur Hveragerði Hamarshöllin
- 14. október fimmtudagur Reykjanesbær Reykjaneshöllin
- 18. október mánudagur Reykjavík ÍR Heimilið
- 19. október þriðjudagur Reykjavík ÍR Heimilið
- 20. október miðvikudagur Kópavogur Kórinn
- 22. október föstudagur Hafnarfjörður Skessan
- 27. október miðvikudagur Akureyri Boginn
- 29. október föstudagur Mosfellsbær Fellið Varmá
Leikreglurnar eru einfaldar en í grunninn er það eftirfarandi:
- 2-3 saman í liði
- Lág nethæð, car. 170cm. Völlurinn ca 12mx4,5m
- Kasta boltanum í uppgjöf
- Grípa boltann í hvert sinn sem hann kemur yfir netið og kasta honum þá á samherja sem blakar boltanum aftur á samherja sem blakar svo yfir netið (2-3 snertingar innan liðs)
- Stig ef boltinn fer í gólfið eða út fyrir völlinn
- Hvert lið skráir aðeins sín stig á Skorblaðið
Hérna er hlekkur á handbók fyrir kennara með frábærum kennsluaðferðum
Einnig er hægt að finna frekari upplýsingar og video af æfingunum hérna:
https://inside.cev.eu/development/videos/#school-project-exercises
og hérna:
https://inside.cev.eu/development/projects/cev-school-project/#handbook-and-exercises
Listi yfir þau félög sem bjóða uppá barna- og unglingastarf:
- Reykjavík – Fylkir
- Reykjavík – Þróttur
- Reykjavík – Leiknir
- Mosfellsbær – Afturelding
- Kópavogur – HK
- Hafnarfjörður – Blakfélag Hafnarfjarðar
- Akureyri – KA
- Húsavík – Völsungur
- Fjallabyggð – Blakfélag Fjallabyggðar
- Neskaupsstaður – Þróttur
- Ísafjörður – Vestri
- Reykjanesbær – Keflavík