Hæfileikabúðir 2025

Blaksamband Íslands hefur opnað fyrir skráningar í Hæfileikabúðir BLÍ 2025 sem haldnar verða í ágúst. Tvennar búðir verða haldnar fyrir krakka á grunnskólaaldri að þessu sinni, 22.-24. ágúst að Varmá í Mosfellsbæ og síðari 29.-31. ágúst á Akureyri. 

Búðirnar eru fyrir leikmenn fædda 2010-2013. Skráning fer fram á Abler og lokar fyrir skráningu viku áður en búðir hefjast (15.ágúst fyrir Mosó og 22. ágúst fyrir Akureyri). Í hæfileikabúðunum fá allir þátttakendur tækifæri á leiðsögn frá okkar fremstu þjálfurum á landinu auk þess sem boðið verður uppá fyrirlestur milli æfinga. Eftir fyrstu æfingu verður hópnum skipt upp eftir getu svo allir fái æfingar við hæfi.  

Búist er við að æfingar byrji á föstudegi kl. 17 og ljúki á sunnudegi kl. 14. 

Borja González afreksstjóri er yfirþjálfari búðanna en með honum verða landsliðsþjálfarar unglingalandsliðanna ásamt þjálfurum á þjálfaranámskeiði BLÍ. Ávallt er mikið um að vera hjá unglingalandsliðunum á haustin eru hæfileikabúðirnar sá vettvangur þar sem þjálfarar yngri landsliðanna fylgjast með leikmönnum og byrja að setja saman hóp fyrir næstu verkefni.  

Í Mosfellsbæ er ekki boðið uppá gistingu en innifalið í verðinu (16.950kr) eru þáttökugjöld, hádegismatur báða dagana, sundferð og bolur.   

Á Akureyri er boðið uppá skólagistingu og matur frá föstudagskvöldi fram að hádegi á sunnudag. Ef valin er gisting þá er kostnaðurinn 22.950 en ef ekki þarf gistingu þá er það sama upphæð og í Mosó eða 16.950kr.