Spurt og Svarað

Mótamál og keppni

Hvar finn ég stöðutöflur deilda?

Stöðutöflur allra deilda má finna í mótakerfi BLÍ. Þar er hægt að velja viðkomandi deild og skoða yfirlit yfir stöðu liða, úrslit og leikjafjölda. Þegar deild hefur verið valin er hægt að fara í „Standings“ til að sjá stöðutöfluna.

Einnig er hægt að fara í gegnum heimasíðu BLÍ undir Mótamál og velja Mótakerfi – leikir og stöðutöflur – allar deildir, sem leiðir á sama stað.

Sjá mótakerfi BLÍ hér: https://bli-web.dataproject.com/MainHome.aspx

Hvar finn ég upplýsingar um næstu leiki?

Upplýsingar um næstu leiki má finna í mótakerfi BLÍ. Þar er hægt að velja deild og fara í „Matches“, þar sem birtast bæði fyrri og komandi leikir ásamt dagsetningum og staðsetningu.
Sjá mótakerfi BLÍ hér: https://bli-web.dataproject.com/MainHome.aspx

Einnig er hægt að fara í gegnum Mótamál á heimasíðu BLÍ, velja deild og fara þaðan í leikjaskrá.

Hvar get ég streymt leikjum úr efstu deild?

Leikir úr efstu deild eru streymdir í gegnum streymislausn BLÍ. Þegar leikur er í gangi er hægt að velja viðkomandi leik og fara í „Live Streaming“.

Einnig eru valdir leikir sýndir á streymisveitunni Livey. Hægt er að nálgast streymið fremst á heimasíðu BLÍ með því að ýta á Livey Leikir mánaðarins eða beint á Livey heimasíðunni.
Sjá streymi á Livey hér: https://watch.livey.events/channels/blaksamband-islands.

Hvenær byrjar keppnistímabilið?

Keppnistímabil í blaki hefst yfirleitt að hausti en nákvæmar dagsetningar geta verið breytilegar á milli ára og deilda. Upplýsingar um upphaf tímabils og leikjaskrá eru birtar á heimasíðu BLÍ og í mótakerfinu.
Sjá mótakerfi BLÍ hér: https://bli-web.dataproject.com/MainHome.aspx

Hvernig virkar deildaskipting í blaki á Íslandi?

Deildaskipting í blaki á Íslandi byggir á styrkleika liða. Efsta deild karla og kvenna er Unbroken deildin og fyrir neðan hana eru neðri deildir þar sem lið spila gegn liðum af svipuðum styrkleika.

Lið geta færst á milli deilda á milli tímabila út frá árangri sínum, þar sem lið sem ná góðum árangri geta unnið sér sæti í efri deildum á meðan lið geta einnig fallið niður um deild. Slíkt fyrirkomulag getur þó verið mismunandi milli ára og fer eftir fjölda liða og skipulagi móta.

Upplýsingar um deildir, stöðutöflur og dagskrá leikja má finna í mótakerfi BLÍ.

Sjá mótakerfi BLÍ hér: https://bli-web.dataproject.com/MainHome.aspx


Almennar upplýsingar

Mig langar að prófa blak, hvert leita ég?

Ef þú vilt prófa blak er best að hafa samband við íþróttafélag á þínu svæði. Á heimasíðu BLÍ er listi yfir aðildarfélög þar sem hægt er að sjá hvaða félög bjóða upp á blak og finna tengiliði.
Sjá aðildarfélög BLÍ hér: https://bli.is/adildarfelog-bli/

Hvar finn ég upplýsingar um aðildarfélög BLÍ?

Upplýsingar um aðildarfélög BLÍ má finna á heimasíðunni undir Um BLÍ og Aðildarfélög BLÍ. Þar er listi yfir öll félög á Íslandi sem bjóða upp á blak, ásamt tengiliðum.
Sjá aðildarfélög BLÍ hér: https://bli.is/adildarfelog-bli/

Hvaða aldur þarf að vera til að byrja í blaki?

Það er hægt að byrja í blaki á mismunandi aldri og það fer eftir hverju félagi hvaða aldurshópa það býður upp á hverju sinni. Mörg félög eru með starf bæði fyrir börn, unglinga og fullorðna iðkendur.

Í yngri flokkum hjá BLÍ er keppt í mismunandi aldursflokkum, meðal annars U12, U14, U16 og U20, þar sem flokkarnir miðast við fæðingarár iðkenda. Upplýsingar um yngriflokkamót og aldursflokka þess má finna á heimasíðu BLÍ.

Sjá upplýsingar um yngri flokka hér: https://bli.is/yngriflokkar/

Sjá aðildarfélög BLÍ hér: https://bli.is/adildarfelog-bli/

Hvað er leikmannaleyfi/iðkendagjald BLÍ og hvernig greiðir maður fyrir það?

Leikmannaleyfi, eða iðkendagjald BLÍ, er gjald sem allir þurfa að greiða til að taka þátt í mótum á vegum sambandsins.

Greiðsla fer fram í gegnum Abler, á markaðstorgi BLÍ, og þar velur iðkandi það félag sem hann hyggst skrá sig í.
Greiða iðkendagjald hér: https://www.abler.io/shop/bli.

Hvar finn ég viðburði á vegum BLÍ?

Viðburðir á vegum BLÍ eru skráðir í viðburðardagatal þar sem má sjá yfirlit yfir mót, æfingabúðir og aðra viðburði.
Sjá viðburðardagatal BLÍ hér: https://teamup.com/ksgjgbc6pjwmd74cu8

Að auki eru viðburðir og tilkynningar oft auglýstar á samfélagsmiðlum BLÍ:

Facebook: BLÍ – Blaksamband Íslands
Instagram: Blaksamband Íslands.

Hvar finn ég reglugerðir BLÍ?

Reglugerðir BLÍ má finna á heimasíðu sambandsins undir Um BLÍ og síðan Reglugerðir BLÍ. Þar eru öll helstu skjöl og reglur aðgengileg.
Sjá reglugerðir BLÍ hér: https://bli.is/reglugerdir-bli/

Hvernig hef ég samband við BLÍ?

Hægt er að hafa samband við BLÍ í gegnum tölvupóst eða í gegnum samfélagsmiðla BLÍ. Á heimasíðunni má einnig finna upplýsingar um starfsemi sambandsins og helstu tengiliði.

Sjá stjórn og tengiliði BLÍ hér: https://bli.is/stjorn-bli/

Netfang BLÍ: bli@bli.is

Samfélagsmiðlar BLÍ:
Facebook: BLÍ – Blaksamband Íslands
Instagram: Blaksamband Íslands


Námskeið, þjálfun og dómgæsla

Hvar finn ég upplýsingar um námskeið á vegum BLÍ?

Upplýsingar um námskeið á vegum BLÍ eru birtar þegar skráning opnar, yfirleitt í gegnum Abler. Þar má sjá lýsingar á námskeiðum, tímasetningar og frekari upplýsingar.
Sjá námskeið á Abler hér: https://www.abler.io/shop/bli.

Einnig eru námskeið oft auglýst á samfélagsmiðlum BLÍ.

Hvar skrái ég mig á námskeið á vegum BLÍ?

Skráning á námskeið BLÍ fer fram í gegnum Abler, þar sem öll námskeið birtast þar þegar skráning opnar.
Skrá mig á námskeið BLÍ hér: https://www.abler.io/shop/bli

Hvernig verð ég þjálfari / hvaða námskeið þarf ég að taka?

Til að verða þjálfari í blaki þarf að sækja þjálfaranámskeið á vegum BLÍ. Námskeiðin eru bæði bókleg og verkleg og þar er farið yfir grunnatriði þjálfunar, kennsluaðferðir og uppbyggingu æfinga. BLÍ býður upp á mismunandi stig þjálfaramenntunar, m.a. BLÍ 1 og BLÍ 2.

Til þess að taka þátt í þjálfaramenntun BLÍ þarf einnig að ljúka viðeigandi stigum þjálfaramenntunar ÍSÍ. ÍSÍ námskeiðin eru kennd í fjarnámi og eru haldin nokkrum sinnum á ári (sumar, vetur og vor). Upplýsingar um námskeið, reglugerðir og skráningu má finna hér:

Sjá þjálfaramenntun BLÍ hér: https://bli.is/thjalfaramenntun-2/

Sjá þjálfaramenntun ÍSÍ hér: https://www.isi.is/fraedsla/thjalfaramenntun-isi

Hvernig verð ég dómari í blaki?

Til að verða dómari í blaki þarf að sækja dómaranámskeið á vegum BLÍ. Á námskeiðunum er farið yfir helstu reglur leiksins, hlutverk dómara, dómarahandmerki og framkvæmd leikja, bæði í bóklegum og verklegum hluta. Að námskeiði loknu og staðfestu prófi öðlast þátttakendur héraðsdómararéttindi hjá BLÍ

BLÍ heldur að jafnaði að minnsta kosti eitt dómaranámskeið á ári, yfirleitt á haustin. Upplýsingar um námskeið og skráningu eru birtar á heimasíðu og samfélagsmiðlum BLÍ þegar skráning opnar.

Sjá dómaramenntun BLÍ hér:https://bli.is/domaramenntun/

Hvar finn ég dómaralista?

Upplýsingar um dómara eru ekki birtar opinberlega á vefnum eins og stendur. Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við BLÍ.


Yngri flokkar

Hvernig virka mót í yngri flokkum?

Mót hjá yngri flokkum eru skipulögð með það markmið að skapa jákvæða og skemmtilega upplifun fyrir iðkendur. Fyrirkomulag móta getur verið mismunandi eftir aldri og flokki en upplýsungar um reglur, skipulag og framkvæmd yngriflokkamóta má finna á heimasíðu BLÍ.

Sjá upplýsingar um yngriflokkamót hér:https://bli.is/yngriflokkamot/

Hvar finn ég upplýsingar um mót hjá yngri flokkum?

Upplýsingar um yngriflokkamót, dagskrá leikja og úrslit má finna á mótasíðu yngri flokka BLÍ. Þar er hægt að velja mót og skoða nánari upplýsingar um leiki og stöðu.

Mótasíðuna er hægt að nálgast beint á forsíðu heimasíðu BLÍ undir Mótasíða yngri flokka BLÍ.

Sjá mótasíðu yngri flokka hér: https://bli.leaguemanager.io/championships?fbclid=IwY2xjawOIE39leHRuA2FlbQIxMQBzcnRjBmFwcF9pZAEwCGNhbGxzaXRlATcAAR4yZw9hNKwx0EKLG8DE5B8E6PAokjd7ZikZdPcAEFA0Zv9ZPBI2TTeipPPFNw_aem_b0pQPWGUFywJcAn0GqXYLw

Hvað þarf að hafa með sér á móti?

Það getur verið mismunandi eftir mótum og aldri hvað þarf að hafa með sér, en almennt er mikilvægt að iðkendur mæti í íþróttafatnaði, með innanhússkó, vatnsbrúsa og það sem þarf fyrir daginn. Félög og þjálfarar senda yfirleitt út nánari upplýsingar fyrir hvert mót.

Hvernig virkar dagskrá leikja hjá yngri flokkum?

Dagskrá leikja hjá yngri flokkum er birt á mótasíðu yngri flokka BLÍ. Þar má sjá hvenær leikir fara fram, hvaða lið eru að spila, á hvaða velli og hvaða lið er í umsjón. Dagskráin getur tekið breytingum og því er gott að fylgjast reglulega með fyrir hvert mót.

Sjá mótasíðu yngri flokka hér: https://bli.leaguemanager.io/championships?fbclid=IwY2xjawOIE39leHRuA2FlbQIxMQBzcnRjBmFwcF9pZAEwCGNhbGxzaXRlATcAAR4yZw9hNKwx0EKLG8DE5B8E6PAokjd7ZikZdPcAEFA0Zv9ZPBI2TTeipPPFNw_aem_b0pQPWGUFywJcAn0GqXYLw


Strandblak

Hvar get ég æft strandblak?

Á Íslandi er hægt að finna strandblaksvelli víðs vegar um landið þar sem fólk kemur saman til að æfa og spila strandblak, sérstaklega yfir sumartímann. Strandblak á Íslandi byggir að stórum hluta á opnum hópum og spilamennsku, þó af og til séu einnig haldnar strandblaksbúðir eða æfingar á vegum félaga eða BLÍ. 

Einnig er hægt að æfa strandblak innandyra í Sandkastalanum, sem er sérhæfð strandblaksaðstaða.

Sjá nánar um Sandkastalann hér: https://sandkastalinn.is/

Hvar finn ég upplýsingar um strandblaksmót?

Upplýsingar um strandblaksmót, dagskrár og annað tengt strandblaki eru birtar á samfélagsmiðlum strandblaksins. Strandblaksnefnd BLÍ heldur úti Facebook-síðu þar sem birtar eru tilkynningar um mót og starfsemi yfir sumarið.

Sjá Strandblak BLÍ / Beach Volley hér: https://www.facebook.com/strandblakiceland

Auk þess er opinn Facebook-hópur fyrir strandblak þar sem leikmenn og áhugafólk deila upplýsingum og auglýsa spilamennsku og viðburði.

Sjá Strandblak / Beach Volley hópinn hér: https://www.facebook.com/groups/strandblakarar

Hvernig virka strandblaksmót á Íslandi?

Strandblaksmót á vegum BLÍ eru kölluð Stigamót. Yfir sumarið eru yfirleitt haldin nokkur stigamót þar sem einstaklingar safna stigum út frá árangri sínum á hverju móti. Því ofar sem lið lendir í sinni deild, því fleiri stig fær það og stigafjöldinn er einnig mismunandi eftir styrkleika deilda.

Síðasta mót sumarsins er Íslandsmótið í strandblaki, þar sem krýndir eru Íslandsmeistarar í strandblaki. Þar að auki eru veitt verðlaun fyrir stigameistara sumarsins, sem eru þeir leikmenn í karla- og kvennaflokki, sem hafa safnað flestum stigum yfir tímabilið.

Nánari upplýsingar um stigakerfi, mótafyrirkomulag og reglur má finna hér:

Strandblaksreglur: https://bli.is/wp-content/uploads/2019/09/Strandblaksreglur.pdf

Mótareglur strandblaks: https://bli.is/wp-content/uploads/2024/06/Reglur-i-moti-uppfaert-juni-2024.pdf

Stigakerfi: https://bli.is/wp-content/uploads/2019/09/Stigagjof-eftir-arangri-2025.pdf

Aðrar upplýsingar varðandi umgjörð móta: https://bli.is/umgjord-mota/

Hvað er Sandkastalinn?

Sandkastalinn er innanhússaðstaða fyrir strandblak þar sem hægt er að æfa og spila strandblak allt árið um kring. Aðstaðan hefur gegnt mikilvægu hlutverki í uppbyggingu strandblaks á Íslandi og nýtist bæði fyrir æfingar, opna spilamennsku og ýmsa strandblaksviðburði.

Sjá nánar um Sandkastalann hér: https://sandkastalinn.is/

Hvar eru strandblaksvellir á Íslandi?

Unnið er að því að taka saman yfirlit yfir strandblaksvelli á Íslandi.



Fræðsla og samfélagsverkefni

Skólablak – hvað er það?

Skólablak er verkefni á vegum BLÍ sem miðar að því að kynna blak fyrir börnum og ungmennum í gegnum skólakerfið. Áhersla er lögð á leik, hreyfingu og jákvæða upplifun þar sem allir geta tekið þátt á sínum forsendum.

Sjá nánar um skólablak hér: https://www.skolablak.is/

Verkefnið er jafnframt hluti af þróunarverkefni á vegum CEV.
Sjá CEV verkefnið hér: https://inside.cev.eu/development/projects/cev-school-project/

Hvað er sitjandi blak?

Sitjandi blak er aðlöguð útgáfa af blaki sem byggir á sömu grunnatriðum og hefðbundið blak, en leikmenn sitja á gólfinu á meðan leik stendur yfir. Leikurinn er hraður og krefst bæði góðrar samvinnu, hreyfingar og leikni.

Reglurnar byggja að stórum hluta á hefðbundnum blakreglum, með nokkrum breytingum sem aðlaga leikinn að sitjandi blaki. Völlurinn er minni og netið lægra en í hefðbundnu blaki, auk þess sem leikmenn þurfa að vera í snertingu við gólfið þegar þeir spila boltann.

Sitjandi blak er alþjóðleg íþrótt á vegum World ParaVolley og hefur verið hluti af Paralympics um árabil.

Sjá alþjóðlegar reglur fyrir sitjandi blak hér: https://worldparavolley.org/wp-content/uploads/2025/09/2025-2028-WPV-Official-Sitting-Volleyball-Rules-English-2025-07-25.pdf

Hvar get ég prófað sitjandi blak?

Sitjandi blak hefur verið kynnt á Íslandi í gegnum námskeið, vinnustofur og viðburði á vegum BLÍ og samstarfsaðila. BLÍ hefur meðal annars unnið með Íþróttafélag fatlaðra að kynningu og þróun íþróttarinnar hér á landi með það markmið að gera blak aðgengilegt fyrir fleiri.

Á síðustu árum hafa verið haldnar vinnustofur og kynningar þar sem bæði leikmenn og þjálfarar hafa fengið tækifæri til að kynnast sitjandi blaki betur.

Sjá frétt frá síðustu vinnustofu BLÍ og ÍF hér: https://bli.is/blak-vinnustofa-bli-og-if/

Sjá umfjöllun hjá Hvata hér: https://hvatisport.is/vel-heppnud-vinnustofa/

Hvar finn ég upplýsingar um sitjandi blak?

Upplýsingar um sitjandi blak og tengda viðburði eru birtar á heimasíðu BLÍ og samfélagsmiðlum sambandsins þegar við á. Einnig má finna frekari upplýsingar hjá Íþróttafélagi fatlaðra og hjá World ParaVolley.

Sjá nánar um ÍF hér: https://ifsport.is/

Sjá World ParaVolley hér:https://worldparavolley.org/disciplines/sitting-volleyball/