Afreksstarf unglinga – Æfingabúðir í mars

Blaksambandið hefur opnað fyrir skráningu á Abler á opnum æfingabúðum sem verða í seinni hluta mars og eru þessar æfingabúðir fyrir bæði stelpur og stráka. Fyrstu æfingabúðir verða fyrir árgangana 2008-2011 (U18 og U20) og munu vera pálmasunnuhelgina 27.-29. mars næstkomandi. Þessar æfingabúðir munu eiga sér stað á höfuðborgarasvæðinu og munu vera til að byrja undirbúning fyrir næsta tímabil yngri landsliða. Skráning er á Abler, https://www.abler.io/shop/bli?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTMxOTI=, og kosta búðirnar 10.000 krónur, hádegismatur fylgir ekki. Skráningu lýkur 25. mars. Áætlaðir æfingatímar og staðsetningar er eftirfarandi:

Föstudagur 27. mars

19:30 – 22:00, Fagrilundur

Laugardagur 28. mars

10:30 – 12:00, Fagrilundur

Sunnudagur 29. mars

9:00 – 12:00, Fagrilundur

15:00 – 17:00, Digranes

Það á eftir að finna staðsetningu og tíma fyrir æfingu eftirmiðdag laugardaginn 28. mars.

Beint eftir þá helgi eru aðrar æfingabúðir sem munu vera fyrir árgangana 2012-2015 (U12 og U14) sem munu eiga sér stað 30. mars – 1. apríl (mánudagur, þriðjudagur og miðvikudagur). Þessar æfingabúðir munu einnig eiga sér stað á höfuðborgarasvæðinu og er skráning á Abler, https://www.abler.io/shop/bli?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTQxODA=. Þessar búðir kosta 14.000 og er innifalinn hádegismatur fyrir tvo daga (mánudag og þriðjudag). Við vonum að sem flestir geti komið alls staðar frá landinu og einnig eru þessar búðir í beinu framhaldi af vormóti U12 og U14 sem verður haldið í Keflavík dagana 27.-29. mars.  Skráningu lýkur 27. mars. Allar æfingarnar munu eiga sér stað í Íþróttahúsinu að Varmá í Mosfellsbæ. Áætlaðir æfingatímar eru eftirfarandi:

Mánudagur 30. mars

10:00 – 12:00

13:30 – 15:30

Þriðjudagur 31. mars

10:00 – 12:00

13:30 – 15:30

Miðvikudagur 1. apríl

9:00 – 12:00

Vonumst til að sjá sem flesta!