Ársþing BLÍ verður haldið föstudaginn 27. mars n.k. kl. 17:00 í fundarsal ÍSÍ að Engjavegi 6 í Laugardal.
Málefni sem sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þinginu, skulu tilkynnt stjórn BLÍ minnst 21 degi fyrir þingið, þ.e. í síðasta lagi 6. mars. Tillögur skulu sendar með tölvubréfi á netfang BLÍ bli@bli.is.
Allar tillögur sem hafa borist fyrir þingið verða sendar út í síðasta lagi 13. mars til sambandsaðila og settar á heimasíðu Blaksambandsins. Kjörbréf fyrir þingið eru send á héraðssambönd og íþróttabandalög.
Auglýst er eftir framboðum til stjórnar Blaksambands Íslands og framboðsfrestur er til 13. mars.
• Þremur aðalmönnum til tveggja ára
• Þremur varamönnum til eins árs
Framboðum skal skila á netfangið bli@bli.is