Framboð í stjórn BLÍ – Ársþing 2026

Þrjú sæti eru laus í aðalstjórn BLÍ. Kosið er til tveggja ára í senn.

Gunnar Gunnarsson (gjaldkeri), Valgeir Bergmann (varaformaður) og Unnur Ása Atladóttir (meðstjórnandi) hafa öll setið í stjórn BLÍ síðustu tvö ár og sækjast eftir endurkjöri.
Einnig hefur borist framboð frá Ólafi Birni Guðmundssyni í aðalstjórn BLÍ.
Í aðalstjórn sitja nú þegar Grétar Eggertsson, formaður, og Elsa Sigrún Elísdóttir, meðstjórnandi.

Í varastjórn sitja þrír aðilar og er kosið til eins árs í senn.
Lúðvík Már Matthíasson sækist eftir endurkjöri. Einnig hafa borist framboð frá Guðrúnu Jónu Árnadóttur og Huldu Elmu Eysteinsdóttur.
Emelía Eríksdóttir og Lúðvík Kristinsson sækjast ekki eftir endurkjöri í varastjórn BLÍ.

Kosið verður í stjórn BLÍ á ársþingi sambandsins sem fer fram föstudaginn 27. mars kl. 17:00 í fundarsal ÍSÍ.

Hér fyrir neðan er hægt að kynnast frambjóðendum betur (í stafrófsröð):

Býður sig fram í varastjórn BLÍ

Guðrún Jóna kynntist blaki sem unglingur hjá Þrótti Neskaupstað og áhuginn kviknaði fljótt, enda uppalin á stað þar sem blak á sterkar rætur. Eftir hlé sneri hún aftur inn í íþróttina í Keflavík og hefur síðan verið virk bæði sem leikmaður, þjálfari og stjórnarmaður. Guðrún hefur setið í stjórn blakdeildar Keflavíkur frá 2017 og verið formaður hennar frá 2019, þar sem hún hefur unnið að uppbyggingu starfsins með sérstakri áherslu á yngri flokka.

Guðrún vill leggja sitt af mörkum til áframhaldandi þróunar blaks á Íslandi. Hún hefur víðtæka reynslu af starfi innan félaga og telur sig geta komið með lausnamiðaðar hugmyndir og nýja sýn sem nýtist í starfi sambandsins.

Helsta áhersla hennar er uppbygging yngri flokka og vill hún stuðla að því að fleiri börn og unglingar kynnist blaki og stundi það, enda er það lykilatriði fyrir framtíð íþróttarinnar og styrk landsliða til lengri tíma. Einnig finnst henni mikilvægast að efla grasrótarstarf og kynningu á blaki meðal ungs fólks. Með því að kynna íþróttina fyrr og betur er hægt að auka þátttöku og styrkja ímynd blaks sem skemmtileg og lifandi íþrótt.

Býður sig fram í aðalstjórn BLÍ

Gunnar hefur setið í aðalstjórn bLÍ síðustu tvö ár sem gjaldkeri en hann situr einnig í stjórn blakdeildar Fylkis.

Gunnar vill láta gott af sér leiða í þágu þessarar frábæru íþróttar en hann hefur sérstakan áhuga á lýðheilsuþættinum, og þá sérstaklega ástundun barna og fólks sem komið er um og yfir miðjan aldur og þátttöku þeirra í blaki.

Býður sig fram í varastjórn BLÍ

Elma er fyrrverandi leikmaður og landsliðskona í blaki og spilar í dag öldungablak. Dóttir hennar leikur jafnframt í efstu deild svo hún fylgist vandlega með því sem er í gangi. Blak hefur verið stór þáttur í lífi hennar Elmu frá níu ára aldri og hefur hún mikinn vilja til að leggja sitt af mörkum og endurgjalda það sem íþróttin hefur gefið sér.

Elmu er sérstaklega annt um að umgjörð og skipulag í kringum blakið sé ávallt til fyrirmyndar. Hún er tilbúin að leggja sitt af mörkum í ýmis verkefni og henni finnst mikilvægast að haldið sé vel um íþróttafólkið sem spilar á hæsta stigi á Íslandi, í Unbroken-deildunum og landsliðum.

Býður sig fram í aðalstjórn BLÍ

Ólafur er svokallaður blakpabbi en dóttir hans spilar mep U-14 liði Aftureldingar. Þó að hann hafi ekki sjálfur stundað blak þá hefur hann verið afreksmaður í öðrum íþróttum á hans yngri árum og þá aðallega í tennis.

Blak er ein af vinsælustu íþróttum í heiminum á eftir knattspyrnu og er Ólafur fullviss um að hægt sé að setja íþróttinni á hærri stall hér heima. Hann hef komið að ýmsu þegar kemur að því að byggja upp íþróttagreinar og telur það spennandi að vera hluti af frábæru teymi hjá BLÍ og frekari uppbyggingu á íþróttinni.

Býður sig fram í varastjórn BLÍ

Lúðvík tengist blaki á marga vegu, lengi vel sem leikmaður HK og landsliða Íslands. Han hefur einnig sinnt þjálfun, stjórnarstörfum hjá HK sem og sjálfboðastörfum á ýmsum vettvangi, þar á meðal í stjórn BLÍ.

Lúðvík býður sig fram í stjórn BLÍ til að halda áfram þeirri vinnu sem hefur verið í gangi undanfarin misseri. Verkefni BLÍ eru fjölbreytt og krefjandi en þar hefur hann áhuga á að styðja við starfið og betrumbæta það enn frekar. Á síðasta ári hefur hann mest komið að afreksstarfi BLÍ og nýtist reynsla hans sem fyrrverandi leikmaður vel. Hann vill halda því starfi áfram og stuðla að uppbyggingu afreksstarfs BLÍ.

Býður sig fram í aðalstjórn BLÍ

Unnur hefur marga snertifleti við blak sem leikmaður, þjálfari, framkvæmdastjóri blakdeildar og síðast en ekki síst sem foreldri afreks-blakara. Hún hefur því ágætis yfirsýn yfir blakíþróttina og því umhverfi sem það starfar í. Hún vonar að með bakgrunni sínum geti hún lagt sitt að mörkum við að efla og viðhalda starfi blaksambandsins.

Unnur telur að nú sé mikilvægt að stjórn og blakdeildir vinni saman að því að fjölga ungum iðkendum og sem strákamamma þá hefur hún sérstaklega áhyggjur af því að strákar eigi undir högg að sækja á Íslandi í dag. Ísland hefur náð eftirtektarverðum árangri í unglingalandsliðum undanfarið í bæði kk og kvk, en ekki hefur verið hægt að halda út 6 manna blakeppni í U16 og U14  stráka í vetur, sem er verulegt áhyggjuefni.

Mikilvægast er að auka sýnileika íþróttarinnar, gera blakíþróttina áhugaverðan valkost, fjölga iðkendum í yngri flokkum og að þátttaka í afreksstarfi sé möguleg fyrir afreksfólk óháð efnahag.

Býður sig fram í aðalstjórn BLÍ

Valgeir byrjaði sjálfur að stunda strandsblak og inniblak með félögum sínum í Massadjamm þar sem aðalmarkmiðið var gleði í góðum félagsskap. Í dag er hann að þjálfa lið í neðri deildum og kynnir þessa skemmtilegu íþrótt fyrir þá sem eru að byrja í blaki.

Valgeir langar að gefa til baka til íþróttarinnar sem hefur gefið honum svo mikið. Hann vill taka þátt í að efla blakið og hjálpa til við að skapa enn betra umhverfi fyrir leikmenn á öllum aldri og getustigum. Hann vill leggja áherslu á jákvætt og uppbyggilegt starf, þar sem blaksambandið kemur að því að styrkja grasrótina, styðja þjálfara og auka áhuga á blaki hjá leikmönnum á öllum aldri. Valgeir segir að það skipti mestu máli að halda gleðinni í leiknum – því þar byrjar allur árangur.