Hamar Íslandsmeistari karla tímabilið 2020-2021

Karlalið Hamars varð Íslandsmeistari í blaki í gær, miðvikudaginn 26. maí, þegar liðið vann KA í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn en vinna þurfti tvo leiki til að standa uppi sem sigurvegari í einvíginu.

Hamars liðið hefur verið virklega öflugt á tímabilinu en liðið vann þrefalt í ár – deildar-, bikar- og Íslandsmeistari á keppnistímabilinu 2020-2021. Hamar tapaði einungis tveimur hrinum í deildarkeppninni og tveimur í úrslitakeppninni sem er sjaldséð.

Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill Hamars í blaki en liðið er nýliði í efstu deild.

Blaksamband Íslands óskar Hamri innilega til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn og tímabilið í heild sinni.