Ísland vann æsispennandi fimm hrinu sigur á Georgíu í Evrópsku SilverLeague deildinni í blaki í dag.
Íslenska kvennalandsliðið í blaki byrjaði Evrópsku Silfurdeildina með glæsilegum 3–2 sigri á Georgíu í hádramatískum leik sem fram fór í Digranesi í Kópavogi. Lokatölur voru 25–19, 13–25, 23–25, 28–26 og 16–14, og unnu þær því leikinn með minnsta mögulega mun.
Heba Sól Stefánsdóttir fór á kostum með 25 stig og var stigahæst allra leikmanna. Lejla Hadziredzepovic bætti við 14 stigum fyrir Íslands og sýndi mikinn stöðugleika í sóknarleik Íslands. Elísabet Einarsdóttir átti einnig frábæran leik, skoraði 12 stig og átti sterkan leik í móttöku sem hjálpaði liðinu að halda dampi þegar Georgía þrýsti á.
Hjá Georgíu stóð Maria Gaprindashvili upp úr með 18 stig – þar af 6 stig úr hávörn og 11 úr sókn auk þess að vera sterk í vörn. Ann Kalandadze bætti við 15 stigum og ungstirnið Magda Kobaidze sýndi mikla lofandi takta með 7 stigum og góðri spilamennsku í fjórða hrinunni.
Fjórða hrinan reyndist einna mest spennandi þar sem Georgía náði að jafna metin og komast yfir á lokametrum hrinunnar og stal sigrinum 28-26 og knúðu þannig frma oddahrinu.
Í fimmu og síðast hrinunni var mikilli dramatík – liðin skiptust á að hafa yfirhöndina, en að lokum hafði Ísland betur 16–14 og fagnaði verðskulduðum sigri.
Þetta var fyrsti sigur Íslands í SilverLeage mótaröðinni en þetta er í annað sinn sem Blaksambandið teflir fram liði í keppninni. Með þessum sigri tekur Ísland forystuna í riðlinum, á meðan Georgía getur verið stolt af baráttuvilja og ungum efnilegum leikmönnum – og á mikið inni fyrir næstu leiki.
Á morgun leika Austurríki og Georgía en á sunnudag spilar íslenska landsliðið aftur þar sem þær taka á móti Austurríki. Báðir leikir fara fram kl. 15:00 í Digranesi.
Myndir frá Mumma Lú