Þjálfaramenntun

Markmið Blaksambands Íslands síðstu ár hefur verið að styrkja faglega þátt íþróttarinnar og hefur þjálfaramenntun aukist til muna og margir þjálfarar komnir með menntun. Við höldum áfram að bjóða upp á námskeið fyrir þjálfara á fyrsta stigi og nú loksins eftir nokkurra ára bið verður haldið námskeið á stigi 2.

Öll félög þurfa að hafa menntaða þjálfara og má sjá nýjar og uppfærðar reglur ásamt viðurlögum hér fyrir neðan.

Næstu BLÍ námskeið eru eftirfarandi:
Sumar 2026 – helgar hafa ekki verið auglýstar.

Eftirfarandi námskeið voru haldin sumarið 2025:
BLÍ 1 bóklegur hluti fór fram á höfuðborgarsvæðinu 15. -17. ágúst 2025 ásamt því að verkefni voru lögð fyrir nemendur á netinu til 1. september. Verklegur hluti fór fram í Hæfileikabúðum að Varmá 22.-24. ágúst og á Akureyri 29.-31. ágúst. Einungis var skylda að mæta aðra hvora verklegu helgina.
BLÍ 2 bóklegur hluti fór fram á höfuðborgarsvæðinu 8.-10. ágúst 2025 ásamt því að verkefni voru lögð fyrir nemendur á netinu til 1. september. Verklegur hluti fór fram í Hæfileikabúðum að Varmá 22.-24. ágúst og á Akureyri 29.-31. ágúst. Einungis var skylda að mæta aðra hvora verklegu helgina.

Hér eru nýjar og uppfærðar reglugerðir varðandi þjálfaramenntun hjá Blaksambandi Íslands:

Þjálfaramenntun – reglugerð 2025

Klára þarf viðunandi stig í ÍSÍ þjálfaramenntun til þess að geta tekið þátt í BLÍ þjálfaramenntun (hægt að sækja um undanþágu ef þáttekndur eru skráðir á næsta opna ÍSÍ námskeið).

ÍSÍ hlutar þjálfaramenntunar eru kenndir þrisvar á ári (sumar, vetur og vor) og eru allir í fjarkennslu.
Hér má sjá auglýsingu frá þeim varðandi skráningu, verð og fleira:

https://isi.is/fraedsla/thjalfaramenntun-isi

Skráning á ÍSÍ námskeiðin fer fram á Abler: ÍSÍ | Námskeið | Abler