Markmið Blaksambands Íslands síðstu ár hefur verið að styrkja faglega þátt íþróttarinnar og hefur þjálfaramenntun aukist til muna og margir þjálfarar komnir með menntun. Við höldum áfram að bjóða upp á námskeið fyrir þjálfara á fyrsta stigi og nú loksins eftir nokkurra ára bið verður haldið námskeið á stigi 2.
Öll félög þurfa að hafa menntaða þjálfara og má sjá nýjar og uppfærðar reglur ásamt viðurlögum hér fyrir neðan.
Næstu BLÍ námskeið eru eftirfarandi:
BLÍ 1 bóklegur hluti fer fram á höfuðborgarsvæðinu 15. -17. ágúst 2025. Verklegur hluti fer fram í Hæfileikabúðum að Varmá 22.-24. ágúst og á Akureyri 29.-31. ágúst. Eingungis er skylda að mæta á aðra hvora verklegur helgina.
BLÍ 2 bóklegur hluti fer fram á höfuðborgarsvæðinu 8.-10. ágúst 2025 ásamt því að verkefni verða lögð fyrir nemendur á netinu til 1. september. Verklegur hluti fer fram í Hæfileikabúðum að Varmá 22.-24. ágúst og á Akureyri 29.-31. ágúst. Eingungis er skylda að mæta á aðra hvora verklegur helgina.
Hér eru nýjar og uppfærðar reglugerðir varðandi þjálfaramenntun hjá Blaksambandi Íslands:
Klára þarf viðunandi stig í ÍSÍ þjálfaramenntun til þess að geta tekið þátt í BLÍ þjálfaramenntun (hægt að sækja um undanþágu ef þáttekndur eru skráðir á næsta opna ÍSÍ námskeið).
Næsta námskeið hjá ÍSÍ hefst 9. júní.
ÍSÍ hlutar þjálfaramenntunar eru kenndir þrisvar á ári (sumar, vetur og vor) og eru allir í fjarkennslu.
Hér má sjá auglýsingu frá þeim varðandi skráningu, verð og fleira: