Á stjórnarfundi BLÍ nú undir kvöld þriðjudaginn 6. október 2020 var tekin sú ákvörðun að fresta öllu mótahaldi og viðburðum á vegum BLÍ sem hér segir vegna nýjustu tíðinda af Covid 19 og til samræmis við auglýsingu heilbrigðisráðherra.
Ákvörðunin tekur til
- Allra leikja í Mizunodeild karla og kvenna frá 7. október þar til annað verður tilkynnt
- Allra leikja í 1. deild kvenna frá 7. október þar til annað verður tilkynnt.
- Allra leikja í Kjörísbikar karla og kvenna þar til annað verður tilkynnt.
- Yngriflokkamóti sem átti að vera í Mosfellsbæ 23.-25. október.
- Afreksbúða á tveimur helgum, 16.-18. október og 23.-25. október.
- Neðri deildamóti helgina 30. október til 1. nóvember.
Frestun þessi tekur gildi frá 7. október og er í gildi þar til auglýsing heilbrigðisráðherra fellur úr gildi nema aðrar tímasetningar séu tilteknar. Gera má ráð fyrir frestun leikja í Mizunodeild og 1. deild til a.m.k. tveggja vikna.
Samkvæmt auglýsingu heilbrigðisráðherra þá eru íþróttir og líkamsrækt innandyra óheimil á höfuðborgarsvæðinu nema fyrir börn fædd árið 2005 og síðar, með höfuðborgarsvæðinu er átt við Reykjavík, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Kjósarhrepp, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ og Kópavog.
Samkomureglur sem kynntar voru í gær gilda óbreyttar á öðrum landssvæðum.
Nánari upplýsingar koma síðar en mótanefnd mun fara strax í að skoða dagsetningar fyrir þá leiki sem þarf að færa.
Blaksamband Íslands veit að aðildarfélögin munu fara í einu og öllu eftir þeim skilyrðum sem fram eru komnar og það er okkar sameiginlega ábyrgð að sjá til þess að sóttvarnarreglum sé framfylgt, með því tökum við ábyrgð á okkur sjálfum og hvort öðru.