U17 ára landsliðin á leið í NEVZA

Nú er komið að því að U17 lið stúlkna og drengja halda til Ikast í Danmörku.
Hér fyrir neðan eru upplýsingar varðandi leikina sem íslensku liðin spila á NEVZA:

Stúlkur
14/10  kl 07:00 Noregur – Ísland
Þær spila svo aftur kl 13:00 en við hvern fer eftir úrslitum fyrri leiks dagsins.
Þann 15/10 og 16/10 fer leiktími eftir því hvernig leikir fara þann 14/10.

Drengir
14/10 kl 12:00   Ísland – Danmörk
14/10 kl 17:00   Finnland – Ísland
Þann 15/10 og 16/10 fer leiktíminn eftir því hvernig úrslit fara þann 14/10.

Sara Lind Dagbjartsdóttir er fararstjóri ferðar og mun hún setja nánari upplýsingar inn á samfélagsmiðla þegar það er ljóst hvernig liðin spila seinni dagana og hvetjum við alla til að fylgjast með því.

Þau sem vilja fylgjast með mótinu er bent á Facebook síðu mótsins https://www.facebook.com/nevzau17

Hér er svo hlekkur á streymi  https://www.danskvolley.tv/en/home