Þjálfaramenntun

Markmið Blaksambands Íslands síðstu ár hefur verið að styrkja faglega þátt íþróttarinnar og hefur þjálfaramenntun aukist til muna og margir þjálfarar komnir með menntun. Við höldum áfram að bjóða upp á námskeið fyrir þjálfara á fyrsta stigi og nú loksins eftir nokkurra ára bið verður haldið námskeið á stigi 2.

Öll félög þurfa að hafa menntaða þjálfara og má sjá nýjar og uppfærðar reglur ásamt viðurlögum hér fyrir neðan.

Næstu BLÍ námskeið eru eftirfarandi:

BLÍ 1 bóklegur hluti fer fram á höfuðborgarsvæðinu 15. -17. ágúst 2025 ásamt því að verkefni verða lögð fyrir nemendur á netinu til 1. september. Verklegur hluti fer fram í Hæfileikabúðum að Varmá 22.-24. ágúst og á Akureyri 29.-31. ágúst. Einungis er skylda að mæta aðra hvora verklegur helgina.

BLÍ 2 bóklegur hluti fer fram á höfuðborgarsvæðinu 8.-10. ágúst 2025 ásamt því að verkefni verða lögð fyrir nemendur á netinu til 1. september. Verklegur hluti fer fram í Hæfileikabúðum að Varmá 22.-24. ágúst og á Akureyri 29.-31. ágúst. Einungis er skylda að mæta aðra hvora verklegur helgina.

Hér eru nýjar og uppfærðar reglugerðir varðandi þjálfaramenntun hjá Blaksambandi Íslands:

Þjálfaramenntun – reglugerð 2025

Klára þarf viðunandi stig í ÍSÍ þjálfaramenntun til þess að geta tekið þátt í BLÍ þjálfaramenntun (hægt að sækja um undanþágu ef þáttekndur eru skráðir á næsta opna ÍSÍ námskeið).

Næsta námskeið hjá ÍSÍ hefst 9. júní.
ÍSÍ hlutar þjálfaramenntunar eru kenndir þrisvar á ári (sumar, vetur og vor) og eru allir í fjarkennslu.
Hér má sjá auglýsingu frá þeim varðandi skráningu, verð og fleira:

Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun 2025