Blaksamband Íslands heldur tvær bikarkeppnir í meistaraflokki, Kjörísbikar BLÍ og Deildarbikar BLÍ. Báðar keppnir eru útsláttarkeppnir en þátttökuréttur og fyrirkomulag er ólíkt. Hér má finna helstu upplýsingar um þátttöku, leikmannalista, fyrirkomulag, drætti og leikdaga.
Kjörísbikar BLÍ
Kjörísbikarinn er bikarkeppni karla og kvenna og er öllum félögum innan BLÍ heimilt að senda lið til keppni. Félög mega senda fleiri en eitt lið. Lið í Unbrokendeildum eru sjálfkrafa skráð í Kjörísbikarinn en önnur lið þurfa að skrá þátttöku sérstaklega.
Keppt er með útsláttarfyrirkomulagi þar sem sigurvegari hvers leiks fer áfram en tapliðið fellur úr keppni. Fjöldi umferða ræðst af skráningu hverju sinni. Ef fleiri en 16 lið eru skráð fer fram undankeppni meðal liða í 2. deild og neðar um sæti í 16 liða úrslitum. Úrvalsdeildarlið geta ekki dregist saman í 16 liða úrslitum.
Það lið sem dregið er fyrr úr pottinum fær að jafnaði heimaleik. Ef lið úr mismunandi deildum mætast fær lið úr lægri deild, eða lið utan deildar, þó heimaleik fram að undanúrslitum. Ef lið þurfa að sitja hjá til að koma fjölda liða niður í 16 eða 8 sitja bikarmeistarar fyrst hjá, þá Íslandsmeistarar og síðan önnur lið samkvæmt drætti.
Leikmannalistar
Öll lið þurfa að skila inn leikmannalista í mótakerfi BLÍ áður en dregið er í fyrstu umferð liðsins. Að lágmarki skulu 10 leikmenn vera á listanum.
Hægt er að bæta löglegum leikmönnum við leikmannalistann eftir að keppni hefst. Þegar leikmaður hefur hins vegar verið skráður á leikmannalista eins liðs í bikarkeppninni getur hann aðeins leikið með því liði í Kjörísbikarnum það keppnistímabil. Ekki er því hægt að færa leikmann á milli liða sama félags eftir að hann hefur verið skráður á lista.
Drættir og leikdagar
Dregið er í hverja umferð keppninnar og eru drættir sýndir í beinni útsendingu hjá BLÍ. Að drætti loknum raðar BLÍ leikjum inn í mótakerfið og skulu leikir fara fram innan þess tímabils sem gefið er upp fyrir viðkomandi umferð.
Á tímabilinu 2026–2027 eru helstu dagsetningar:
- 16 liða úrslit: 23. október–13. desember 2026
- 8 liða úrslit: 22. janúar–10. febrúar 2027
- Undanúrslit og úrslit: 18.–20. mars 2027 í Digranesi
Skráningarfrestur í Kjörísbikarinn 2027 var 9. október 2026. Skráningargjald er 45.000 kr. og gengur það upp í þátttökugjald fyrstu keppnisumferðar liðsins. Hvert lið greiðir að hámarki 150.000 kr. samtals vegna þátttöku í keppninni.
Ferðakostnaður
Ef ferðast þarf lengra en 100 km aðra leið vegna bikarleiks skipta liðin með sér ferðakostnaði samkvæmt reglugerð BLÍ. Gisti- og fæðiskostnaður fellur ekki undir þá skiptingu. Liðin sjá sjálf um uppgjör sín á milli en BLÍ skal vera með í samskiptum sem snúa að ferðakostnaði.
Umgjörð leikja í Kjörísbiakrnum skal vera í samræmi við umgjörð leikja í Unbroknedeildum.
Nánari ákvæði má finna í Reglugerð um bikarkeppni BLÍ.
Deildarbikar BLÍ
Deildarbikarinn er ný útsláttarkeppni BLÍ fyrir karla- og kvennalið í Deildakeppninni. Fyrsta keppnistímabil Deildarbikarsins er 2026–2027.
Markmið keppninnar er að fjölga keppnistækifærum fyrir leikmenn í neðri deildum og bjóða upp á annars konar keppnisform en hefðbundnar mótshelgar. Leikið er í stökum leikjum þar sem vinna þarf þrjár hrinur til að vinna leik. Sigurliðið heldur áfram í keppninni en tapliðið fellur úr leik.
Öll félög sem eru með skráð lið í Deildakeppni BLÍ geta tekið þátt. Leikmenn sem spila í 1. deild eða Unbrokendeild hafa ekki þátttökurétt í Deildarbikarnum. Sama gildir um U20-leikmenn sem spila með tveimur liðum sama félags.
Lið í Deildarbikarnum þarf ekki að vera það sama og lið félagsins í Íslandsmótinu. Félög mega sameina leikmenn úr fleiri en einu deildarliði í eitt lið og geta einnig skráð fleiri en eitt lið til keppni. Að lágmarki þurfa 10 leikmenn að vera skráðir í hvert lið og hver leikmaður má aðeins leika með einu liði í Deildarbikarnum.
Fyrirkomulag Deildarbikarsins
Í upphafi keppninnar er liðunum skipt í SV- og NA-hluta til að draga úr ferðalögum. Dregið er í hverja umferð og ræðst fjöldi umferða af skráningu. Fyrstu umferðir tímabilsins 2026–2027 verða leiknar frá 1. nóvember til 1. mars. Lið sem dragast saman fá tveggja vikna tímabil til að koma sér saman um leikdag. Dregið verður í fyrstu umferð í lok október.
Þau fjögur lið sem komast lengst leika á sameiginlegri úrslitahelgi 19.–21. mars 2027. Tvö efstu liðin úr NA-hluta og tvö efstu úr SV-hluta fara þá í pott fyrir undanúrslitin. Leikið er bæði um gull- og bronsverðlaun og úrslitaleikir karla og kvenna fara fram í Digranesi sunnudaginn 21. mars.
Skráning og gjöld 2026–2027
Skráningarfrestur í Deildarbikarinn er 22. október 2026.
Skráningargjald er 20.000 kr. Þátttökugjald fyrir hverja umferð er 20.000 kr. og þátttökugjald á úrslitahelgi er 45.000 kr. á lið. Hvert lið greiðir að hámarki 100.000 kr. samtals vegna þátttöku í keppninni.
BLÍ greiðir dómarakostnað í Deildarbikarnum. Ef ferðalengd er meiri en 100 km aðra leið skipta liðin með sér ferðakostnaði samkvæmt reglugerð, þó ekki gisti- eða fæðiskostnaði. Reglugerð BLÍ 2026-2027 uppfærð…
Umgjörð leikja í Deildarbikarnum skal vera í samræmi við umgjörð leikja í 1. deild.
Nánari ákvæði má finna í Reglugerð um útsláttarkeppni deildarliða.