Dómarar og kröfur til félaga
Hvert lið í úrvalsdeild þarf að tilnefna 1 landsdómara og 1 héraðsdómara til að dæma 10 leiki á tímabilinu. Lið í 1. deild þurfa að tilnefna að minnsta kosti 1 héraðsdómara á hverju tímabili sem skuldbindur sig til að dæma 10 leiki á árinu. Héraðsdómararéttindi þarf til að dæma í efstu tveimur deildunum á Íslandi.
Tilkynna þarf til dómaranefndar fyrir 1. september ár hvert hvaða dómarar munu dæma fyrir hvert lið. Að öðrum kosti þarf að halda dómaranámskeið fyrir liðið. Dómaranefnd er heimilt að veita undanþágu ef til vandræða horfir, en nefndin skal þó halda að minnsta kosti eitt dómaranámskeið á ári, yfirleitt á haustin. Lið sem útvegar ekki tilskilda dómara á keppnistímabilinu getur átt von á sekt að upphæð kr. 50.000 fyrir hvern dómara sem upp á vantar.
Dómaranámskeið
Dómaranámskeið BLÍ er ætluð þeim sem hafa áhuga á að starfa sem dómarar í blaki. Á námskeiðunum er farið yfir helstu reglur leiksins, hlutverk dómara, dómarahandmerki og framkvæmd leikja, bæði í bóklegum og verklegum hluta.
Að loknu námskeiði og staðfestu prófi öðlast þátttakendur héraðsdómararéttindi hjá BLÍ, sem veita heimild til að dæma leiki í mótum sambandsins samkvæmt gildandi reglum.
Héraðsdómaranámskeið 2025
Dagana 4.-6. september 2025 var haldið héraðsdómaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu. Bóklegi hluti námskeiðsins fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og einnig var boðið upp á þátttöku í gegnum Teams. 5. september fór fram bóklegt próf. Verklegi hluti námskeiðsins og prófið fór fram í Fagralundi. Einnig var dómurum sem höfðu áður lokið námskeiðinu og staðist próf, en ekki fengið tækifæri til að dæma mikið á síðustu tímabilum, gefinn kostur á að mæta annað hvort á allt námskeiðið eða eingöngu í verklega kennslu.