Ársþing BLÍ verður haldið laugardaginn 13. apríl n.k kl 17:00 Í sal Framsýnar – Stéttarfélags Þingeyinga, Garðarsbraut 26.
Málefni sem sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þinginu, skulu tilkynnt stjórn BLÍ minnst 21 degi fyrir þingið, þ.e í síðasta lagi 23. mars. Tillögur skulu sendar með tölvubréfi á netfang BLÍ bli@bli.is
Allar tillögur sem hafa borist fyrir þingið verða sendar út í síðasta lagi 1. apríl til sambandsaðila og settar á heimasíðu Blaksambandsins. Kjörbréf fyrir þingið eru send á héraðssambönd og íþróttabandalög.
Auglýst er eftir framboðum til stjórnar Blaksambands Íslands og framboðsfrestur er til 1 apríl.
- Þremur aðalmönnum til tveggja ára
- Þremur varamönnum til eins árs.
Framboðum skal skila á netfangið bli@bli.is
Tillögur að reglugerðabreytingum sem nú eru komnar og voru ræddar á reglugerðarfundi 12. mars má finna hér: