Ársþing BLÍ verður haldið föstudaginn 28. mars n.k kl 18:00 i fundarsal ISI að Engjavegi 6 í Laugardal.
Málefni sem sambandsaðilar óska eftir að verði tekin fyrir á þinginu, skulu tilkynnt til stjórnar BLÍ minnst 21. degi fyrir þingið, þ.e í síðasta lagi 7. mars n.k. Tillögur skulu sendar með tölvubréfi á á netfang BLÍ bli@bli.is
Allar tillögur sem hafa borist fyrir þingið verða settar á heimasíðu Blaksambandsins í síðasta lagi 14. mars. Kjörbréf fyrir þingið eru send á héraðssambönd og íþróttabandalög.
Auglýst er eftir framboðum til stjórnar Blaksambands Íslands og framboðsfrestur er til 14. mars.
• Formanni Blaksambandsins til tveggja ára
• Tveimur aðalmönnum til tveggja ára
• Þremur varamönnum til eins árs
Framboðum skal skila á netfangið bli@bli.is