Áríðandi tilkynning v/COVID 19

Blaksamband Íslands tilkynnir um að þeir leikir sem eru á dagskrá um helgina verði leiknir án áhorfenda!!

Leik Þróttar Nes og Þróttar Reykjavíkur sem átti að hefjast kl. 15.00 í Mizunodeild kvenna var frestað vegna COVID 19.

Biðjum alla í blakhreyfingunni að huga að eigin sóttvörnum núna þegar faraldurinn virðist á uppleið að nýju en staðan verður tekin að nýju eftir helgi er varðar áhorfendur á blakleikjum.