Blakfólk ársins 2021

Blaksamband Íslands tilkynnti um val á blakmanni og blakkonu ársins 2021 í hádeginu í dag á árlegum blaðamannafundi sambandsins í höfuðstöðvum ÍSÍ. Vegna sóttvarna var ekki hægt að hafa fundinn opinn öllum og var honum því streymt á Facebook síðu BLÍ fyrir áhugasama.

Blakmaður ársins – Ragnar Ingi Axelsson 

Ragnar Ingi er Blakmaður ársins 2021 og ber nafnbótina í fyrsta skipti. Ragnar hóf sinn blakferil, líkt og margir aðrir, í Neskaupstað. Í fyrra gekk Ragnar til liðs við nýliða Hamars í Úrvalsdeild karla og spilaði lykilhlutverk í liðinu, vann alla þrjá stóru titlana sem í boði voru á tímabilinu en Hamar varð deildar-, Íslands- og bikarmeistari í vor. Ragnar var valinn í lið ársins í uppgjöri Úrvalsdeildar að keppnistímabilinu loknu. 

Ragnar Ingi leikur í stöðu frelsingja og hefur verið einn besti varnarmaður Úrvalsdeildarinnar á liðnum árum. Hann er með bestu tölfræðina í sinni stöðu það sem af er þessu tímabili og var á dögunum valinn í úrvalslið Úrvalsdeildarinnar eftir fyrri hluta tímabilsins. Ragnar og lið hans Hamar, hafa ekki enn tapað leik á árinu 2021 og eru ósigraðir í 32 keppnisleikjum í röð. 

Ragnar Ingi er leikmaður A landsliðsins og á að baki 15 leiki og hefur einnig leikið með öllum yngri landsliðum Íslands.  

Ragnar Ingi Axelsson er blakmaður ársins 2021

Blakkona ársins – Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir

Jóna Guðlaug er Blakkona ársins 2021, annað árið í röð. Jóna sem hóf feril sinn hjá Þrótti í Neskaupstað hefur verið útnefnd Blakkona ársins sex sinnum en hún hlaut nafnbótina fyrst árið 2005. Hún hefur sl. ár leikið sem atvinnumaður í blaki og spilar með liði Hylte/Halmstad í Svíþjóð.  

Jóna Guðlaug er fyrirliði Hylte/Halmstad og gegndi lykilhlutverki í liðinu sem varð þrefaldur meistari á vormánuðum, lyfti Jóna deildarmeistara- og bikarmeistaratitli ásamt því að verða Svíþjóðarmeistari í blaki. Í uppgjöri sænsku úrvalsdeildarinnar var Jóna valin í lið ársins. 

Um árabil hefur Jóna Guðlaug verið fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í blaki og á að baki 84 landsleiki auk þess sem hún lék með öllum yngri landsliðum Íslands.  

Á yfirstandandi keppnistímabili er lið Jónu Guðlaugar í toppsæti sænsku úrvalsdeildarinnar og hefur liðið ekki tapað leik það sem af er keppnistímabilinu.

Blaksamband Íslands óskar Ragnar Inga og Jónu Guðlaugu innilega til hamingju með árangurinn á árinu.  

Emil Vigfússon, bróðir Jónu Guðlaugar, tók við verðlaununum fyrir hennar hönd