U20 kvennalandslið Íslands í blaki hefur tryggt sér sæti á lokamóti Evrópumótsins 2027 eftir frábæran árangur á SCA-móti í San Marínó.
Íslenska liðið stóð uppi sem sigurvegari mótsins og tryggði sér þar með sæti á lokamóti EM U20, sem fram fer á Ítalíu og Möltu í júlí 2027.
Þetta er annað árið í röð sem Ísland tryggir sér sæti á lokamóti Evrópumóts unglingalandsliða og er árangurinn því enn einn mikilvægur áfangi í uppbyggingu yngri landsliða Íslands.
Fleiri verkefni fram undan hjá yngri landsliðunum
Það er nóg um að vera hjá yngri landsliðum Íslands á næstu vikum.
U20 karlalandsliðið heldur til Skotlands dagana 15.–19. október þar sem liðið tekur þátt í SCA-móti sem jafnframt er undankeppni fyrir EM. Þar freista strákarnir þess að feta í fótspor U20 kvennalandsliðsins og tryggja sér sæti á lokamóti Evrópumótsins.
U17 kvennalandsliðið heldur einnig utan og fer til Ikast í Danmörku þar sem liðið tekur þátt í boðsmóti NEVZA.
Fram undan eru því spennandi verkefni hjá yngri landsliðum Íslands og verður áhugavert að fylgjast með liðunum í komandi verkefnum.