U19 landslið Íslnads í strandblaki kvenna tók þátt í SCA-móti sem fór fram í Encamp í Andorra dagana 17. – 19. júlí. Ísland átti tvö lið í keppninni og náði frábærum árangri. Sóldís Júlía Sigurpálsdóttir og Helena Kristjánsdóttir stóðu uppi sem sigurvegarar mótsins og tryggðu Íslandi með sigrinum þátttökurétt á lokamóti EvrópumótsU20 árið 2027. Katla Björg Beck og Sveinbjörg Lilja Ingólfsdóttir luku keppni í 8. sæti.



Sóldís og Helena léku í A-riðli ásamt liðum frá Andorra, Írlandi og Möltu. Þær hófu mótið með 2-0 sigri gegn heimakonum frá Andorra (21-13, 21-15) og fylgdu því eftir með öruggum sigri gegn Írlandi (21-9, 21-14). Í lokaleik riðilsins unnu þær Möltu (21-7, 21-5) og tryggðu sér efsta sæti riðilsins án þess að tapa hrinu.


Katla og Sveinbjörg voru í B-riðli ásamt liðum frá Andorra, Færeyjum, Skotlandi og Norður-Írlandi. Þær hófu keppni með leik gegn heimakonum frá Andorra en töpuðu 0-2 (17-21, 15-21). Í öðrum leik sínum náðu þær sér vel á strik og unnu Norður-Írland 2-0 (21-16, 21-18). Á öðrum keppnisdegi mættu þær Færeyjum og Skotlandi en töpuðu báðum leikjunum og héldu því áfram í leikjum um 7. – 9. sæti. Þar töpuðu þær fyrsta leiknum 0-2 á móti Andorru (19-21, 10-21) en í seinni leiknum unnu þær Norður-Írland öðru sinni á mótinu 2-0, nú með 21-15 og 21-7, og enduðu að lokum í 8. sæti.



Í undarúrslitunum mættu Sóldís og Helena Skotlandi og unnu öruggan 2-0 sigur (21-9, 21-13). Í úrslitaleiknum biðu þeirra Færeyingar, en íslenska parið hélt áfram á sömu braut og sigraði 2-0 með hrinunum 21-12 og 21-12. Þar með unnu þær alla fimm leikina sína á mótinu í tveimur hrinum og stöðu uppi sem verðugir SCA-meistarar.


Landsliðsþjálfarinn Pedro D. Dupuy Del Lome Nashchimento var afar ánægður með frammistöðu íslensku liðanna. Að hans sögn léku Sóldís og Helena af miklu öryggi allt mótið, unnu alla sína leiki með sannfærandi hætti og árangurinn kom frá öflugum uppgjöfum og sterkum varnarleik.
Blaksamband Íslands óskar Sóldísi, Helenu, Kötlu og Sveinbjörgu innilega til hamingju með glæsilegan árangur.
