Kjörsíbikarinn – miðasala er hafin

Frétt uppfærð 9.3.21 kl.20:00

Bikarhelgi BLÍ fer fram um komandi helgi, 12.-14. mars og er forsala miða á undanúrslitin hafin.

Með því að fara inn á https://bli.felog.is/verslun er hægt að kaupa miða á undanúrslitaleiki karla og kvenna.

Einungis 140 miðar eru til sölu og kostar miðinn 1000.- kr. á undanúrslitaleikina en barnmiði kostar 100.- kr.

Allir áhorfendur telja í áhorfendatölu og engin undatekning er með börn fædd 2005 og síðar.

Miðahafar verða að skila inn nafni, kt. og símanúmeri ásamt réttu netfangi. Rafrænn aðgangsmiðinn birtist í tölvupósti og hann þarf að sýna í miðasölunni. Hægt er að greiða með debet og kredit korti.

Nokkrir mikilvægir punktar fyrir helgina:

  1. Það er grímuskylda fyrir áhorfendur í Digranesi. Vinsamlegast virðið það, við ætlum að framfylgja öllum þeim reglum sem snúa að sóttvörnum. Börn fædd 2005 og síðar eru undanþegin grímuskyldu.
  2. Stúkan verður hólfaskipt og sæti númeruð. Þar sem miðasala er hafin og ekki hægt að kaupa númeraða miða í stúku þá verður vísað í hólf og sæti við komuna í Digranes.
  3. Ávallt skal halda meters fjarlægð á milli óskildra einstaklinga.
  4. Einstaklingsbundnar sóttvarnir – munum mikilvægi þeirra.
  5. Þegar leik er lokið verða áhorfendur að yfirgefa húsnæðið sem allra fyrst svo hægt sé að sótthreinsa stúku og aðra sameiginlega snertifleti. Þetta á líka við um þá sem hafa keypt sér miða á næst leik á eftir og gildir ALLA helgina.