Dagana 17.–21. mars fóru fjórir fulltrúar frá Blaksambandi Ísland í heimsókn til hollenska blaksambandsins (Nevobo) sem hluti af erasmus+ verkefninu “We Lead Volleyball Together”. Markmiðið var að kynna sér nálgun þeirra á uppbyggingu, þátttöku og þróun í blaki.
Nevobo er staðsett í Utrecht, Haag og Apeldoorn í Hollandi og styður við um 950 félög og yfir 380.000 iðkendur. Starfsemin einkennist af sterkri félagamenningu þar sem áhersla er lögð á samfélag, skýra sýn og markvissa langtímaþróun.
Í heimsókninni var meðal annars farið í heimsókn til blakfélagsins Irene þar sem yngstu iðkendurnir (6–12 ára) æfa við aðlagaðar aðstæður sem minna að hluta til á íþróttaskóla, en með skýrari tengingu við blak. Þar er lögð áhersla á leikgleði, samhæfingu og færniþróun í gegnum fjölbreyttar stöðvaæfingar. Reglur, vallastærðir og leikform eru aðlöguð að aldri og getustigi og í mörgum tilvikum er stigatalning ekki í forgrunni.
Ferðin gaf einnig tækifæri til að sjá leik hjá einu af sterkustu liðum Hollands, Orion Stars, gegn toppliði frá Belgíu í nýrri alþjóðlegri deild. Umgjörð leiksins var til fyrirmyndar með glæsilegri kynningu, tónlist, stemningu og notkun á „challenge“ kerfi, sem undirstrikar áherslu þeirra á upplifun áhorfenda.
Heimsóttar voru höfuðstöðvar sambandsins þar sem um 80 starfsmenn sinna fjölbreyttum verkefnum svo sem markaðsmálum, fjármálum og mótahaldi. Einnig var skoðuð aðstaða fyrir bæði strandblak og innanhúsblak sem er mjög góð, þó að ákveðnar áskoranir séu til staðar í samvinnu milli greinanna vegna samkeppni um iðkendur.
Sérstök áhersla í hollenska kerfinu er á „manninn á undan leikmanninum“, þar sem þróunarleiðir taka mið af jafnvægi milli íþrótta, vellíðanar og menntunar. Kerfið tengir skýrt saman félög, svæðisbundin verkefni og landsliðin.
Ferðalangarnir fengu einnig að fylgjast með æfingu hjá U18 landsliðshópi drengja þar sem valdir leikmenn frá mismunandi félögum æfa saman reglulega sem undirbúningur fyrir landslið. Þar mátti sjá skýran mun á leikmönnum eftir því hversu lengi þeir höfðu verið í prógramminu.
Í lok ferðarinnar var sótt hraðmót fyrir 6–12 ára þar sem spilað var 2 á 2 og 3 á 3 án sýnilegs stigakerfis. Áherslan var á að byggja upp grunnfærni á skemmtilegan hátt og efla áhuga barna á íþróttinni til lengri tíma.
Hollenska blaksambandið leggur mikla áherslu á inngildingu og sýnileika íþróttarinnar, meðal annars með verkefnum í skólum og færanlegri blakaðstöðu sem gerir kleift að ná til nýrra hópa iðkenda.
Heildarniðurstaða ferðarinnar er að hún veitti dýrmæta innsýn og innblástur fyrir áframhaldandi uppbyggingu blaks á Íslandi, sérstaklega hvað varðar barna- og unglingastarf, félagaumhverfi og langtímaáætlanir.


