50. ársþing Blaksambandsins

Stjórn BLÍ hefur boðað til 50. ársþings Blaksambands þann 27. apríl nk. Þingið verður í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og hefst kl. 16.30.

Ársþing BLÍ er vettvangur til að ræða um hreyfinguna í heild sinni, gera tillögur að breytingum og koma með hugmyndir til Blaksambandsins. Í Þingboði má finna nánar um dagsetningar um hvenær skila á tillögum inn til stjórnar fyrir þingið og einnig um framboð til setu í stjórn BLÍ.