Landsliðsþjálfarar unglingalandsliðanna munu á næstu dögum gefa út æfingahópa fyrir verkefni sín á næstunni.
U17 landslið karla og kvenna fara í NEVZA mót í IKAST í Danmörku dagana 13.-18. október. Landsliðsþjálfarateymið er þannig skipað.
U17 kvenna: Aðalþjálfari Borja Gonzalez Vicente og honum til aðstoðar Birta Björnsdóttir
U17 karla: Aðalþjálfari er Lárus Jón Thorarensen og honum til aðstoðar Sladjana Smiljanic
U19 landslið karla og kvenna fara í NEVZA mót í Kuortane í Finnlandi dagana 23.-28. október. Landsliðsþjálfarateymið er þannig skipað.
U19 kvenna: Aðalþjálfari Borja Gonzalez Vicente og honum til aðstoðar Ragnar Ingi Axelsson
U19 karla: Aðalþjálfari er Tihomir Paunovski og honum til aðstoðar Egill Þorri Arnarsson
Á næstu dögum birtir BLÍ æfingahópa fyrir öll þessi landslið en þau munu æfa helgina 27.-29. september nk.