KA deildarmeistari karla

KA er deildarmeistari Mizunodeildar karla í blaki tímabilið 2018-2019. KA liðið lék í gær sinn síðasta heimaleik í deildarkeppninni þegar þeir mættu karlaliði Aftureldingar. KA var fyrir þó nokkru búið að tryggja sér sigur í deildinni og fengu því afhentan bikarinn í gær á sínum heimavelli. KA á eftir að spila tvo leiki í deildinni en þeir mæta Þrótti N. helgina 2.-3. mars. 

Úrslitakeppni um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn hefst svo laugardaginn 30. mars.