Stjórn og starfsfólk hélt vinnudag á Hvammstanga

Stjórn Blaksambands Íslands ásamt starfsfólki kom saman til vinnudags á Hvammstanga föstudaginn 9. október síðastliðinn.

Markmið vinnudagsins var að fara yfir starfsemi sambandsins, meta það sem vel hefur gengið og ræða þau tækifæri og áskoranir sem fram undan eru. Jafnframt var horft til framtíðar og rætt um helstu áherslur sem framundan eru  í starfi BLÍ.

Það voru fjölmörg mikilvæg málefni til umræðu, meðal annars mótahald, afreksstarf, uppbygging yngri landsliða, strandblak, starfsemi skrifstofunnar og aukinn sýnileiki blakíþróttarinnar. Sérstök áhersla var lögð á nýliðun, fjölgun drengja í blaki og mikilvægi blaks sem lýðheilsuíþróttar fyrir fólk á öllum aldri.

Einnig var rætt um áframhaldandi þróun og uppbyggingu sambandsins, auk þess sem horft var til samstarfs við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands um ýmis málefni.

Vinnudagurinn var bæði gagnlegur og uppbyggilegur og skapaði góðan vettvang fyrir opnar umræður, hugmyndavinnu og sameiginlega sýn á framtíð blakíþróttarinnar á Íslandi.

Fundargerð vinnudagsins er aðgengileg hér fyrir neðan fyrir þau sem vilja kynna sér nánar umræðurnar og helstu áherslur