Stjórn BLÍ hefur boðað til 51. ársþings þann 15. apríl n.k. Þingið verður í Íþróttamiðstöðinni Laugardal og hefst kl 09:30.
Ársþing BLÍ er vettvangur til að ræða um hreyfinguna í heild sinni, gera tillögur að breytingum og koma með hugmyndir til Blaksambandsins. Í þingboði má finna nánari upplýsingar um dagsetningar og hvenær skal skila inn tillögum til stjórnar fyrir þingið og einnig um framboð til setu í Stjórn BLÍ.