Hæfileikabúðir BLÍ 2022

Blaksamband Íslands hefur opnað fyrir skráningar í Hæfileikabúðir BLÍ 2022 sem haldnar verða í ágúst. Tvennar búðir verða haldnar fyrir krakka á grunnskólaaldri að þessu sinni, 19.-21. ágúst að Varmá í Mosfellsbæ og síðari 26.-28. ágúst á Akureyri. 

Búðirnar eru fyrir leikmenn fædda 2007-2011. Skráning fer fram á Sportabler  (https://www.sportabler.com/shop/bli) og lokar fyrir skráningu viku áður en búðir hefjast (11.ágúst fyrir Mosó og 18. ágúst fyrir Akureyri). Í hæfileikabúðunum fá allir þátttakendur tækifæri á leiðsögn frá okkar fremstu þjálfurum á landinu auk þess sem boðið verður uppá fyrirlestur milli æfinga. Eftir fyrstu æfingu verður hópnum skipt upp eftir getu svo allir fái æfingar við hæfi.  

Búist er við að æfingar byrji á föstudegi kl. 17 og ljúki á sunnudegi kl. 14. Við auglýsum að allir þeir sem taka þátt í búðunum í Mosó fá frían miða á landsleik karlaliðsins á móti Portúgal þann 21. ágúst kl. 15:00 og verður rúta frá Varmá og upp í Digranes eftir æfingarnar. Þeir sem taka þátt á Akureyri fá miða sem hægt er að nota á leiki kvennalandsliðsins í september.  

Mikið verður um að vera hjá unglingalandsliðunum okkar í haust og á næstu árum og eru hæfileikabúðirnar sá vettvangur þar sem þjálfarar yngri landsliðanna geta séð leikmenn og byrja að setja saman hóp fyrir næstu verkefni, mikilvægt er því að taka þátt annað hvort í Mosó eða á Akureyri.  Fyrir leikmenn fædda 2006 – 2003 þá verða haldnar sams konar búðir helgina 9.-11. september á höfuðborgarsvæðinu sem verða undanfari að landsliðshóp.

Í Mosfellsbæ er ekki boðið uppá gistingu en innifalið í verðinu (13.500kr) eru þáttökugjöld, hádegismatur báða dagana, sundferð og bolur.   

Á Akureyri er boðið uppá gistingu í Lundaskóla og matur frá föstudagskvöldi fram að hádegi á sunnudag. Ef valin er gisting þá er kostnaðurinn 19.500 en ef ekki þarf gistingu þá er það sama upphæð og í Mosó eða 13.500kr.