Hæfileikabúðir BLÍ í blaki

Hæfileikabúðir BLÍ í blaki

Helgina 16.-18. ágúst 2019 mun Yngriflokkanefnd BLÍ vera með hæfileikabúðir í blaki fyrir börn og unglinga á aldrinum  12-19 ára  (7. bekkur/4. flokkur og eldri) og eru allir iðkendur á þessum aldri velkomnir í búðirnar.

Búðirnar verða haldnar í íþróttamiðstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ og hægt er að fá gistingu í Varmárskóla með morgunmat báða dagana ásamt kvöldmat á laugardeginum.  Ekki er í boði að senda krakka eina í gistingu, nauðsynlegt er að fullorðinn einstaklingur fylgi þeim sem gista.

Allir þátttakendur verða í hádegismat á laugardegi og sunnudegi og allir fá frítt í sund í Varmárlaug.

Dagskrá búðanna verður kynnt um leið og hún liggur fyrir en æft verður á laugardegi og sunnudegi og mun Blaksamband Íslands útvega þjálfara í búðirnar.  Reiknað er með að búðunum ljúki um kl. 15:00 á sunnudeginum.

Kostnaðurinn í búðirnar er  9.800 kr fyrir þá sem gista og 5.200 kr fyrir þá sem ekki gista.

Eins og á síðasta ári þá greiða þeir sem ferðast lengra en 300 km ekki þátttökugjald í búðirnar.

Hér er linkur inn á  skráningarskjal í búðirnar. Vinsamlegast skráið nafn og kennitölu ásamt íþróttafélagi og öðrum upplýsingum í réttan flipa en þeir eru merktir með ártölum iðkenda neðst í skjalinu. 

Með því að hægri smella á linkinn hér fyrir neðan og velja: Open hyperlink þá komist þið inn á skjalið.

Skráning í Hæfileikabúðir BLI 2019

Gjaldið skal greiða inn á reikning: 528-14-404975  kt: 460974-0119. Vinsamlegast sendið tölvupóst á netfangið: gunnastina@gmail.com við greiðslu.

Merkja þarf greiðsluna með nafni iðkenda sem skýringu við greiðslu.

Skráningarfrestur rennur út þriðjudaginn 6.ágúst og þá þarf einnig að vera búið að ganga frá greiðslum í búðirnar.

Með blakkveðjum,
Blaksamband Íslands