Heiðursmerki á afmælishátíð HK

Á 50 ára afmæli HK sem haldið var upp á um helgina sæmdi Blaksambandið fimm einstaklinga með heiðursmerkjum BLÍ.

Á tímamótum sem þessum er venjan að sæma sjálfboðaliða í blakhreyfingunni með heiðursmerki sambandsins. Að þessu sinni var ákveðið að sæma 5 einstaklinga hjá Blakdeild HK með merkjum fyrir vel unnin störf í blakhreyfingunni.

Vilborg Guðmundsdóttir fékk gullmerki BLÍ. Vilborg átti stóran þátt í uppbyggingu blakdeildar HK sem nú er orðið stórveldi í blakheiminum enda félagið með flest lið í deildakeppni BLÍ og öflugt yngriflokkastarfs. Hún er silfurmerkishafi BLÍ síðan 2004 og framlag hennar til íþróttarinnar, hjá HK og Blaksambandinu, gerir hana svo sannarlega verðugan handhafa gullmerkis BLÍ.

Halldór Elvarsson fékk silfurmerki BLÍ. Halldór hefur starfað í yngriflokkastarfinu hjá HK um árabil og einnig komið að verkefnum fyrir Blaksambandið.

Eyrún Harpa Hlynsdóttir fékk silfurmerki BLÍ. Eyrún Harpa var formaður blakdeildar HK í nokkur ár og hefur verið mjög virk í sjálfboðaliðastörfum fyrir Blaksambandið undanfarin ár.

Magnús Haukur Ásgeirsson fékk silfurmerki BLÍ. Magnús hefur verið lengi í blakinu og var formaður blakdeildar HK. Hefur hann einnig komið að sjálfsboðaliðastörfum fyrir Blaksambandið.

Heiðdís Ösp Jónsdóttir fékk silfurmerki BLÍ. Heiða er mjög virkur sjálfboðaliði hjá HK og hefur stýrt m.a. nokkrum mótum fyrir félagið. Nær dugnaður hennar til Blaksambandsins þar sem hún hefur unnið frábært starf sem sjálfboðaliði í nokkrum verkefnum.

Blaksambandið óskar þeim öllum hjartanlega til hamingju.