Nýr landsliðsþjálfari karla

Nýr landsliðsþjálfari Magnús Helgi Aðalsteinsson hefur verið ráðinn þjálfari landsliðs karla í þeim verkefnum sem framundan eru en karlarnir fara til Edenborgar í júní n.k og mun Magnús stýra því verkefni.

Magnús hefur víðtæka reynslu af þjálfun og auk þess að stýra félagsliðum í efri deildum í Noregi nú síðustu ár þá hefur hann starfað sem landsliðsþjálfari hér á Íslandi sem og í Færeyjum hvort sem er fyrir kvenna eða karlaliðin en einnig hefur hann séð um þjálfun unglingalandsliða.

Við bjóðum Magnús velkominn til starfa.