Stefán hættir eftir langt tímabil

Ársþing Blaksambands Íslands var á laugardaginn. Þingið var að venju starfsamt og margar tillögur sem lágu fyrir þinginu. Upphaflega átti ársþingið að vera í lok mars en því var frestað vegna heimsfaraldurs. Rúmlega 21 þingfulltrúi sótti þingið.

Fyrir þingið var ljóst að Stefán Jóhannesson og Kristín Harpa Hálfdánardóttir myndu hætta í stjórn. Þá var ljóst einnig að Sigurbjörn Árni Arngrímsson myndi ekki gefa kost á sér áfram í varastjórn en hann hefur verið frábær sjálfboðaliði fyrir Blakhreyfinguna síðan 2013 með mótamálin í sinni umsjá. Sigríður Jónsdóttir fyrsti varaforseti ÍSÍ sæmdi Sigurbjörn Árna gullmerki ÍSÍ og óskum við honum til hamingju með það. Að auki sæmdi Sigríðu hana Kristínu Hálfdánardóttur og Andra Hnikarr Jónsson með silfurmerki ÍSÍ.

Kristín Hálfdánardóttir og Sigurbjörn Árni með Sigríði Jónsdóttur frá ÍSÍ

Stefán Jóhannesson hætti í stjórn eftir langt tímabil en hann var kosinn fyrst í stjórn BLÍ árið 1992. Stefán var kosinn formaður BLÍ á ársþingi árið 1995 og gengdi því til ársins 1999. Kom hann aftur inn í stjórn BLÍ árið 2004 og hefur setið samfellt síðan sem varaformaður sambandsins.

Stefán Jóhannesson og Grétar Eggertsson, formaður BLÍ

Stefáni var þakkað vel og innilega fyrir störf sín fyrir Blakhreyfinguna og þakkaði hann einnig fyrir sig í frábærri lokaræðu á þinginu þar sem komið var inn á fyrri ársþing og minningar úr leik og starfi, m.a. frá frægri ferð til Abuja í Nígeríu með kvennalandsliðið árið 2005 þar sem yfirskriftið gæti verið svona: „Til Afríku og til baka án vegabréfs.“

Kosið var í nýja stjórn BLÍ á þinginu en inn í stjórn BLÍ komu þær Dagbjört Víglundsdóttir og Hrafnhildur Theódórsdóttir. Báðar hafa þær verið áður í stjórn BLÍ en Dagbjört er fyrrum afreksmaður í blaki og á að baki fjölmarga landsleiki fyrir Ísland. Í varastjórn sambandsins voru sjálfkjörin þau Steinn Guðni Einarsson, Valgeir Bergmann og Ásthildur Gunnarsdóttir en þau tvö síðastnefndu eru ný inn í hlutverkið en Steinn hefur verið í varastjórn um nokkurt skeið.

Í lok ársþings BLÍ á laugardag sæmdi Grétar Eggertsson, formaður þau Auði Ösp Jónsdóttur og Stein Guðna Einarsson með heiðursmerki BLÍ úr silfri. Hafa þau bæði verið mikilvægir sjálfboðaliðar í hreyfingunni undanfarin ár og eiga skilið þann heiður að komast á lista silfurmerkishafa BLÍ.

Grétar þakkaði þingmönnum störfin og sagði það ljóst að mörg verkefni væru framundan hjá Blaksambandinu og nefndi þar helst strandblakmótin framundan, þjálfaramenntunina sem er að fara í gang um næstu helgi ásamt því að keyra afreksstarfið af stað að nýju eftir Covid19.