Stjórn BLÍ samþykkir félagaskipti með úrskurði

Undir lok janúar bárust tvenn félagaskipti á borð BLÍ þar sem félög höfðu neitað að skrifa undir til að heimila leikmanni að hafa félagaskipti.
Um er að ræða félagaskipti Luz Medina frá KA til Aftureldingar og Kristins Freys Ómarssonar frá Aftureldingu til Fylkis.
Báðum málunum var skotið til stjórnar BLÍ sem síðan óskaði eftir frekari gögnum til rökstuðnings hvers vegna félagaskiptin ættu eða ættu ekki að vera samþykkt.

Í báðum tilfellum var ekki deilt um skuldleysi leikmanns við félag sem ganga átti úr. Þar með var 2. gr. reglugerðar um félagaskipti uppfyllt. Ágreiningur málsaðila í báðum tilvikum sneri að samningum leikmanna við félögin sem ganga átti úr.
Að viðhöfðu samráði við lögfræðing er varðaði samningamálin, var það niðurstaða stjórnar að samþykkja félagaskiptin.

Málsaðilum var tilkynnt um niðurstöðuna í dag.