Þjálfarar endurráðnir

Blaksamband Íslands og landsliðsnefnd BLÍ hafa gengið frá samningi við þjálfara Kvennalandsliðsins fram yfir Smáþjóðaleika 2021.

Borja Gonzalez Vicente og Ana María Vidal Bouza hafa endurnýjað samninga sína við sambandið en þau tóku við liðinu síðasta sumar og náðu góðum árangri á Smáþjóðaleikunum í Svartfjallalandi.

Kvennalandsliðið mun keppa næst á NOVOTEL CUP í Luxemborg í byrjun árs 2020 þar sem lið Luxemborgar, Englands og Túnis munu keppa. Á næstu vikum kemur svo í ljós í hvaða opinberum keppnum landsliðið mun spila í á næsta ári.