U17 landslið kvenna í blaki með brons á NEVZA 2022 

U17 landsliðin í blaki eru nú á leiðinni heim eftir að hafa tekið þátt í Norðurevrópumóti (NEVZA) unglingalandsliða. Stelpurnar unnu þar til bronsverðaluna og strákarnir enduðu í 6. sæti. 

U17 hópur karla. Þjálfarar í ferðinni voru Oscar Celis (til hægri) og Bjarki Benediktsson (til vinstri). Sjúkraþjálfari liðsins var Unnur Árnadóttir og liðsstjóri Kristín Ágústsdóttir (ekki á mynd).
U17 hópur kvenna. Þjálfarar í ferðinni voru Miguel Mateo Castrillo (til hægri) og Ramses Ballesteros (til vinstri). Sjúkraþjálfari liðsins var Ragnheiður Lóa Stefánsdóttir og liðsstjóri var Pétur Ingi Haraldsson (ekki á mynd).

Liðin hófu leik mánudaginn 17. október. Kevannamegin spilaði Ísland í riðli ásamt Færeyjum og Englandi. Íslensku stelpurnar unnu Færeyingana sannfærandi 3-0 en töpuðu gegn Englandi og enduðu því í öðru sæti í riðlinum. Strákarnir spiluðu í riðli með Danmörku og Svíþjóð og töpuðu báðum sínum leikjum. 

Á þriðjudaginn var spilað krossspil. Þar unnu íslensku stelpurnar hörkusigur á heimakonum frá Danmörku 3-2 og komust í undanúrslit þar sem þær spiluðu á móti Norðmönnum. Leikurinn var hörkuspenanndi en tapaðist að lokum 1-3. Strákarnir spiluðu gegn Færeyjum en töpuðu naumlega öllum hirnum og leiknum 0-3. 

Á miðvikudaginn var spilað til úrslita. Þar spiluðu bæði lið gegn Englandi, strákarnir um 5. sætið og stelpurnar um 3. sætið. Strákarnir töpuðu sinni baráttu 0-3 og höfnuðu því í 6. sæti á mótinu. Stelpurnar hefndu sín fyrir fyrra tap gegn Englandi og unnu sterkan 3-0 sigur og fara því heim með bronsverðlaun af mótinu.

U17 hópur kvenna með bronsverðlaun.

Helena Einarsdóttir (frelsingi) og Lejla Hadziredzepovic (kantur) voru báðar valdar í draumalið mótsins og Lejla var einnig valinn besti leikmaður mótsins (MVP).

Fulltrúar Íslands í draumaliði mótsins. Lejla Hadziredzepovic önnur frá vinstri og Helena Einarsdóttir lengst til hægri.

Við óskum hópnum innilega til hamingju með árangurinn. Leikmenn eru á leiðinni heim í dag með fullt af reynslu í bankanum. 

Næsta NEVZA mót er U19 keppnin þar sem Ísland teflir fram liði í kvennaflokki 28.-30. október í Rovaniemi, Finnlandi.

Myndir frá danska blaksambandinu (Hamistolen Sports Photography og Henrik Petersen).