Undanfarna mánuði hefur Blaksambandið verið að undirbúa menntunarkerfi fyrir þjálfara í blaki. Nú er komið að því að setja námskeiðin í gang en skráning verður opnuð á vefnum á mánudaginn fyrir BLÍ 1.
Þjálfaragráðurnar eru 5 talsins og er á dagskrá að þrjú námskeið verði í sumar auk prófs.
Skráning á BLÍ 1 fer fram á bli.felog.is – opnar seinni partinn á mánudag.
Námskeiðið fer fram á ensku og má finna dagskrána hér á ensku
BLÍ 1 (20 einingar): 20.-21. Júní 2020
Laugardagur 20. júní – Fagrilundur (10 einingar)
09:00-09:45 Kynning á BLÍ námskeiði 1. (fundarsalur)
09:45-12:45 Fræðilegur hluti: Tækniatriði (uppspil, móttaka og undirhandar uppgjöf. (fundarsalur)
13:00-14:00 Hádegishlé
14:00-17:45 Verklegt: Uppspil, móttaka og uppgjöf (Íþróttahús)
17:45-18:30 Samantekt
Sunnudagur 21. júní – Fagrilundur (10 einingar)
09:00-10:30 Fræðilegur hluti: Krakka- og unglingablak 1-1, 2-2, litlir leikir (fundarsalur)
10:30-12:45 Fræðilegur hluti: Tækniatriði yfirhandar uppgjöf og sókn. (fundarsalur)
13:00-14:00 Hádegishlé
14:00-17:45 Verklegt: yfirhandar uppgjöf og sókn. (Iþróttahús)
17:45-18:30 Samantekt
Í framhaldinu eru dagsetningar fyrir næstu námskeið, BLÍ 2 og BLÍ 3 en lokapróf úr námskeiðunum fer svo fram í ágúst.
BLÍ 2: 3.-5. Júlí 2020
Próf: Hæfileikabúðir BLÍ 14.-16. ágúst