https://forms.office.com/r/j7Gebf7JPv
BLÍ á grunnupplýsingar um öll félög sem eiga nú þegar lið skráð í Íslandsmót og því þarf einungis að senda inn eftirfarandi upplýsingar til mótastjóra ef félag ætlar að skrá lið til leiks:
- Nafn liðs
- Nafn og kennitala forráðamanns
- Netfang og símanúmer forráðamanns
1. deild skal skipuð B-liðum Úrvalsdeildaliða og öðrum liðum sem kjósa að keppa í 1.deild. Verði lið í 1. deild fleiri en 12 skal deildin verða riðlaskipt og mótanefnd falið að útfæra þá skiptingu nánar. Athygli er vakin á eftirfarandi punktum:
- Engin breyting verður á fyrirkomulagi deildarinnar frá síðasta keppnistímabili, spilað verður heima og að heiman
- Engin félög féllu úr deildinni eða koma upp eftir síðasta keppnistímabil
- Fleiri en eitt lið frá sama félagi geta verið í 1.deild
- B-lið félags (eitt lið) getur einungis verið tengt úrvalsdeildarliðinu
- Öllum félögum er frjálst að skrá/óska eftir þátttökurétti í 1.deild
Ef um nýskráningu félags er að ræða, þ.e. félagið á engin lið skráð á Íslandsmót og er að taka þátt í fyrsta skipti eða eftir einhverja pásu þá þarf að óska eftir skráningarblaði frá mótastjóra með því að senda póst á motastjori@bli.is. Þau lið skulu samt einnig fylla inn formið hér að ofan.
Skráningu lýkur 15. júlí 2022.