Ísland SCA meistari 2021 í U19 kvenna

EEE Um helgina fór fram alþjóðleg keppni í blaki kvenna U19. Mótið var haldið af Blaksambandi Íslands og fór fram í íþróttahúsinu á Laugarvatni en þetta var fyrsta alþjóða blakkeppnin sem hefur verið haldin á Íslandi síðustu 2 árin.

Um helgina fór fram alþjóðleg keppni í blaki kvenna U19. Mótið var haldið af Blaksambandi Íslands og fór fram í íþróttahúsinu á Laugarvatni en þetta var fyrsta alþjóða blakkeppnin sem hefur verið haldin á Íslandi síðustu 2 árin.

Þátttökuþjóðirnar voru Ísland, Færeyjar, Gíbraltar og Malta. Lið Gíbraltar var að mæta í fyrsta sinn í alþjóðlegt mót á Íslandi.

Stelpurnar léku við Færeyjar í háspennu úrslitaleik

Íslenska kvenna­landsliðið stóð uppi sem sigurvegari eftir 3-2 sig­ur á Fær­eyj­um á í úr­slita­leik smáþjóðamóts kvenna U19.

Ísland vann fyrstu hrin­una 26-24 en fær­eyska liðið svaraði með 25-17 sigri í ann­arri hrinu. Ísland komst í 2:1 með 25-20 sigri í þriðju hrinu en aft­ur jafnaði fær­eyska liðið með 25-18 sigri í fjórðu hrinu.

Eft­ir æsispenn­andi odda­hrinu vann ís­lenska liðið 15:10-sig­ur. Titil­inn er sá fyrsti sem ís­lenska liðið vinn­ur, en úr­slita­leik­ur­inn tók 141 mín­útur.

Blaksamband Íslands óskar leikmönnum, þjálfurum og starfsfólki liðsins innilega til hamingju með titilinn.