Stelpurnar með gull og strákarnir með brons á Evrópumótum smáþjóða

Kvennalið Íslands í blaki hélt til Lúxemborgar í lok maí og unnu þar til gullverðlauna á Evrópumóti smáþjóða (CEV SCA).

Í hópnum voru þær:
Auður Líf Benediktsdóttir
Daníela Grétarsdóttir
Dýrleif Hanna Sigmundsdóttir
Heba Sól Stefánsdóttir
Heiðdís Edda Lúðvíksdóttir
Helena Einarsdóttir
Kristey Marín Hallsdóttir
Líney Inga Guðmundsdóttir
Matthildur Einarsdóttir
Sara Ósk Stefánsdóttir
Sigrún Marta Jónsdóttir
Thelma Dögg Grétarsdóttir
Tinna Rut Þórarinsdóttir
Valdís Unnur Einarsdóttir
Þjálfari: Borja Gonzalez Vicente
Aðstiðarþjálfari: Egill Þorri Arnarson
Liðsstjóri: Einar Friðgeir Björnsson
Sjúkraþjálfari: Ragnheiður Lóa Stefánsdóttir
Dómari: Guðný Rut Guðnadóttir

Sex lið hófu leik á mót­inu og byrjaði Íslandi í B-riðli, ásamt Norður-Írlandi og Skotlandi. Lúx­em­borg, Malta og Írland skipuðu A-riðil. Ísland vann ör­ugg­an 3:0 sig­ur á Norður-Írlandi í fyrsta leik, en tapaði naum­lega fyr­ir Skotlandi í öðrum leik. Fyr­ir vikið endaði Ísland í öðru sæti B-riðils og mætti Lúx­em­borg í undanúr­slit­um. Þar vann Ísland 3:2 eft­ir æsispenn­andi leik, þar sem úr­slit­in réðust í odda­hrinu. Með sigr­in­um tryggði liðið sér ann­an leik gegn Skotlandi, nú í úr­slit­um móts­ins. Ísland vann fyrstu og þriðju hrin­una, en Skot­um tókst að jafna í ann­arri og fjórðu og réðust úr­slit­in í odda­hrinu. Þar vann Ísland að lok­um, 15:12, og leik­inn í leiðinni 3:2.

Thelma Dögg Grét­ars­dótt­ir var val­in besti leikmaður móts­ins og þær Tinna Rut Þór­ar­ins­dótt­ir og Val­dís Unn­ur Ein­ars­dótt­ir voru einnig í úr­valsliðinu.

Karlaliðið hélt svo til Edinborgar í Skotlandi um miðjan júní og unnu þeir til bronsverðlauna á sama móti.

Hópinn skipuðu:
Atli Fannar Pétursson
Aron Bjarki Kristjánsson
Hafsteinn Már Sigurðsson
Hafsteinn Valdimarsson
Hreinn Kári Ólafsson
Kristján Valdimarsson
Markús Ingi Matthíasson
Máni Matthíasson
Sigurður Helgi Brynjúlfsson
Sigurður Kári Harðarson
Sverrir Bjarki Svavarsson
Valens Torfi Ingumundarson
Þjálfari: Magnús Helgi Aðalsteinsson
Aðstoðarþjálfari: Tamás Kaposi
Liðsstjóri: Jason Ívarsson
Sjúkraþjálfari: Ragnheiður Lóa Stefánsdóttir
Dómari: Sævar Már Guðmundsson

Ísland spilaði í B-riðli ásamt Írlandi og San Marínó. Í A-riðli spiluðu Skot­ar, Norður-Írland og Lúx­em­borg. Í fyrsta leik móts­ins tapaði Ísland naum­lega fyr­ir San Marínó en strák­arn­ir spiluðu vel í öðrum leikn­um og unnu Íra, 3:0 og enduðu því í öðru sæti riðilsins. Í undanúr­slit­um mætti Ísland sterku liði Lúx­em­borg og tapaðist sá leik­ur. Framund­an var því leik­ur um bronsverðlaun þar sem Ísland mætti San Marínó öðru sinni á mót­inu. Strák­arn­ir unnu sterk­an sig­ur, 3:1, og komu heim með bronsverðlaun.

Miðjumaður­inn Haf­steinn Valdi­mars­son var að loknu móti val­inn í úr­valslið móts­ins.

9 leikmenn voru að stíga sín fyrstu skref með A landsliðum á þessum mótum og fengu þau afhent bronsmerki BLÍ.
Aron Bjarki Pétursson
Auður Líf Benediktsdóttir
Dýrleif Hanna Sigmundsdóttir
Helena Einarsdóttir
Hreinn Kári Ólafsson
Kristey Marín Hallsdóttir
Sigurður Helgi Brynjúlfsson
Sigurður Kári Harðarson
Sverrir Bjarki Svavarsson

Blaksamband Íslands óskar öllum leikmönnum sem og þjálfarateymi innilega til hamingju með þennan stórglæsilega árangur.