Þjálfaranámskeið ÍSÍ

Vorfjarnám 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ hefst mánudaginn 6. feb. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi.

Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.

Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.

Skráning fer fram á sportabler: https://www.sportabler.com/shop/isi

Nemendur velja rétt námskeiðog ganga frá greiðslu námskeiðsgjaldsins í heimabanka. Þeir sem ekki hafa skráð sig áður í Sportabler þurfa að búa til nýjan aðgang undir „Nýr notandi“. Allar nánari uppl. um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467& 863-1399 og/eða á vidar@isi.is

Þeir sem hafa klárað BLÍ námskeið þurfa að klára samsvarandi ÍSÍ námskeið svo að réttindi teljast fullgild.