Úrvalslið fyrri hluta tímabilsins

Á árlegum blaðamannafundi BLÍ sem fram fór í hádeginu í dag var úrvalslið fyrri hluta tímabilsins opinberað. Kosið var rafrænt og voru það þjálfarar og fyrirliðar liðanna sem kusu úrvalsliðið þegar deildarkeppnin er rétt um hálfnuð. 

Úrvalslið karla hefur á að skipa fimm leikmönnum Hamars frá Hveragerði en liðið er taplaust á tímabilinu. Hafsteinn Valdimarsson, Kristján Valdimarsson, Ragnar Ingi Axelsson, Wiktor Mielczarek og Damian Sapor koma allir frá Hamri en þeir Hristiyan Dimitrov úr HK og Carlos Eduardo Rangel Escobar úr Vestra eru einnig í liðinu. Massimo Pistoia þjálfari HK fær þann heiður að þjálfa úrvalslið fyrri hluta tímabilsins. 

Mynd af úrvalsliði karla

Í úrvalsliði kvenna er það Gonzalo Garcia Rodriguez þjálfari Þróttar Fjarðabyggðar sem stýrir úrvalsliði fyrri hluta tímabilsins en í liðinu koma leikmenn frá KA, Aftureldingu og Þrótti Fjarðabyggð. Úrvalsliðið skipa þær Valdís Kapitola Þorvarðardóttir og Tea Andric úr KA, Thelma Dögg Grétarsdóttir, Luz Medina og María Rún Karlsdóttir úr Aftureldingu og þær Paula Miguel de Blaz og María Jimenes Gallego úr Þróttur Fjarðabyggð. 

Mynd af úrvalsliði kvenna